149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

umræður og andsvör.

[15:13]
Horfa

Brynjar Níelsson (S):

Hæstv. forseti. Ég ætlaði bara að koma aðeins upp til að reyna að ljúka þessari umræðu um ekki neitt. Þetta málþóf Miðflokksins var auðvitað engum af þeim sem tóku þátt í því til sóma, sem var allur Miðflokkurinn, en þetta er allt saman þekkt. Ég er ekki búinn að vera lengi á þingi, og þó, sex ár, það er þó nokkur tími, og ég hef séð þetta allt saman áður, líka þegar menn hafa verið í andsvari hver við annan, þannig að mér finnst ekki tilefni til að fara hérna upp í fundarstjórn almennt til að ræða þetta mjög lengi. Ég held að Miðflokkurinn hafi ekki grætt neitt á þessum málflutningi og öllum ræðunum nema kannski til að reyna að sýna fram á að hann væri sérstakur flokkur — sem hann er og enginn ágreiningur um. [Hlátur í þingsal.] Ég held að hann hafi alveg komið því til skila. Ég hef engan áhuga á að takmarka (Forseti hringir.) tjáningarfrelsi þingmanna Miðflokksins en held að það væri samt til bóta að takmarka það eitthvað aðeins meira en gert var.