149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

umræður og andsvör.

[15:14]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P):

Frú forseti. Ég ætla að blanda mér stutt í umræðuna um ekki neitt, eins og hv. þm. Brynjar Níelsson kallaði hana, hún er það pínulítil og ekki um neitt. Þegar notuð eru hins vegar orðin skerðing tjáningarfrelsisins í algerlega kolröngum skilningi má ég til með að láta heyra í mér. Ég hvet hv. þm. Þorstein Sæmundsson til að skoða vel skilgreiningu á tjáningarfrelsi vegna þess að okkur þingmönnum í pontu eru alls konar skorður settar í sambandi við að tjá okkur, t.d. er þingmálið íslenska. Ég lít ekki svo á að það sé skerðing á tjáningarfrelsi mínu að mega ekki tala kínversku og eins lít ég ekki svo á að það sé skerðing á mínu tjáningarfrelsi að það sé hefð fyrir því að um fundarstjórn sé ákveðinn ræðutími. Þetta eru þingsköp og hefðir sem hafa fylgt þeim í áratugaraðir þannig að um það snýst málið (Forseti hringir.) og ekki endilega — ég bið, frú forseti, um að hv. þingmenn noti ekki tjáningarfrelsið í röngum tilgangi.