149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

umræður og andsvör.

[15:16]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Mér finnst þessi umræða mjög mikilvæg og ég get ekki tekið undir það að hún sé ekki um neitt ef menn ætla að brjóta þessa vinnureglu. Ég er búin að vera tíu ár á þingi og hef aldrei séð neitt því líkt sem hefur gerst undanfarna sólarhringa í þessum þingsal. Það sem er mögulegt að gera, ef menn vilja taka það upp að samflokksmenn fari í andsvör hver við annan, er að hægt er að blokkera samtalið algjörlega þannig að menn koma bara í pontu og taka undir með þeim sem var að tala. Bara fjórir þingmenn mega veita andsvör og það er hægt að loka algjörlega á samtalið sem andsvörin leyfa okkur í þessum sal.

Mér finnst þessi umræða núna sérstaklega mikilvæg. Hún er um það hvernig við komum okkur saman um að hafa samskiptin (Forseti hringir.) í þessum þingsal og við þurfum auðvitað að ræða um það okkar á milli ef einn flokkur ætlar að brjóta það án þess að tala við kóng eða prest.

Það eru einræðistilburðir, frú forseti. (Gripið fram í.)