umræður og andsvör.
Forseti gerir ráð fyrir að þessari herferð um fundarstjórn forseta sé lokið, a.m.k. í bili, og þá vill forseti nefna það að það atvik sem átti sér stað áðan þegar samflokksmenn fór í andsvör hver við annan varð með engum hætti til þess að hefta málfrelsi neins í ljósi þess að allir höfðu tækifæri til að halda aðra ræðu og fara í fleiri andsvör. Ég held því að það ákveðna atvik hafi ekki bitnað á einum eða neinum eða málfrelsi eins eða neins. Hins vegar var verið að vísa í umræðu sem hefur átt sér stað hér á síðustu dögum og fólk kann að hafa mismunandi skoðanir á henni.