tekjuskattur.
Herra forseti. Ég geri hér grein fyrir frumvarpi til laga sem heitir því langa nafni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum (frádráttur vegna kolefnisjöfnunar). Auk mín eru flutningsmenn Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Guðmundur Andri Thorsson, Helgi Hrafn Gunnarsson, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Óli Björn Kárason, Ólafur Þór Gunnarsson, þannig að þetta er nokkuð þverpólitískt mál, ef þannig má að orði komast.
Svo það fari ekkert á milli mála hvernig 1. og aðalgrein frumvarpsins hljóðar þá er hún einfaldlega svohljóðandi:
„Við 31. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Framlög til aðgerða sem gagnast kolefnisjöfnun, þó ekki yfir 0,85% af tekjum samkvæmt B-lið 7. gr.“ — ég kem að henni á eftir — „á því ári sem framlögin eru innt af hendi. Þetta á við aðgerðir í rekstri til kolefnisjöfnunar sem og fjárframlög til skógræktar, uppgræðslustarfa og endurheimtar votlendis. Til framlaga teljast, auk fjárframlaga til sjóða, sjálfseignarstofnana og samtaka sem vinna að kolefnisjöfnun, verklegar framkvæmdir sem fyrirtæki taka að sér í samvinnu við sjóði, sjálfseignarstofnanir og samtök og taka ekki greiðslu fyrir. Til framlaga telst einnig framkvæmdakostnaður, svo sem fæði og ferðir, þegar um er að ræða sjálfboðaliðastörf starfsmanna fyrirtækis til kolefnisjöfnunar. Ráðherra skal setja nánari reglur um framkvæmd ákvæðisins.“
Því er svo við að bæta, það er í 2. gr. þessa frumvarps, að lögin taki gildi um næstu áramót, 1. janúar 2020, og komi þar með til framkvæmda fyrir tekjuárið 2019.
Svo ég setji þetta frumvarp í samhengi langar mig að lesa, með leyfi forseta, örfáar málsgreinar upp úr greinargerðinni. Þær eru svohljóðandi:
„Íslensk stjórnvöld hafa sett sér framsækin markmið í loftslagsmálum. Fyrra skrefið verður tekið með því að gangast undir skuldbindingar Parísarsamkomulagsins um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Seinna skrefið felst í að ná þeirri stöðu að verða kolefnishlutlaust samfélag fyrir árið 2040. Hvorugu markmiði verður náð án virkrar samvinnu ríkis, sveitarfélaga, atvinnulífs og almennings.
Meðal aðgerða í samþykktri aðgerðaáætlun ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur er aukin binding kolefnis. Þar er einna fyrirferðarmest aukin skógrækt og uppgræðsla auðna og illa farins gróðurlendis. Í ljós hefur komið að endurheimt votlendis sem ræst hefur verið fram og ekki nýtt er einnig áhrifarík aðgerð við að binda gróðurhúsalofttegundir. Unnið er jafnt og þétt að endurskoðun aðgerðaáætlunarinnar og sett fram skilgreind markmið eftir því sem fjárlög hvers árs teljast rúma.“
Þetta var úr greinargerðinni. Eins og ég segi setur það málið í hlutlægan ramma. Þetta eru um leið nokkuð gleðileg og jákvæð tíðindi þar sem er verið að horfa til gróandans og til þeirrar stöðu í loftslagsmálum sem nú er uppi. Hún er ekki góð.
Ég nefni sem dæmi að síðastliðin fjögur ár eru þau hlýjustu á heimsvísu síðan mælingar hófust. Svo ég taki mið af fjarlægri heimsálfu, þ.e. Asíu, og hverfi til Himalaya, þá er litið svo á að þó að það takist að halda hlýnun loftslagsins á heimsvísu innan við 1,5 stig á tilteknu viðmiði, munu jöklar þar rýrna um 30%. Hér á landi eru horfurnar svipaðar. Og eins og margoft hefur verið tekið fram verða hér engir jöklar eftir 150–200 ár, haldi fram sem horfir, þó að hlýnunin verði ekki meiri en þetta.
Þegar kemur að okkur hér á Íslandi þá miðar okkur hægt við að bregðast við. Það verður að auka viðnámið og undirbúa viðbrögðin betur, vegna þess að jafnvel þótt svo fari að okkur takist að halda hlýnuninni undir 1,5 stigum í aukningu, jafnvel 2 stigum, þá munum við þurfa að súpa seyðið af því áratugum saman. Þess vegna er mjög jákvætt að sjá að ríkisstjórnin hefur ákveðið að skipa loftslagsráð sem á að vera til ráðgjafar og halda utan um ýmsa þræði. Ég tel reyndar að taka þurfi frekari skref í þessa átt og hafa hér fastar stöður, eða fasta skrifstofu sem gegnir þessu hlutverki ásamt loftslagsráðinu.
Stjórnvöld hafa tekið mjög ákveðin skref. Þau hafa sett upp aðgerðaáætlun sem nú er í endurskoðun. Þau hafa aukið fjármagn til þessara hluta og hafa aflað frekari tekna, t.d. með því að hækka græna skatta, hækka kolefnisgjöld, vegna þess að þegar allt kemur til alls munu þau viðbrögð sem ég nefni kosta okkur gríðarlega stórar upphæðir og heimsbyggðina reyndar líka, þannig að það er engin undankoma frá því að þurfa virkilega að slá í innheimtuklárinn og auka gjöld og skattbyrði á öll samfélög í veröldinni, hvernig sem þau nú eru.
Ég bendi líka á að ríkisstjórnin áætlar að stofna loftslagssjóð, sem er auðvitað nýmæli, og skiptir verulegu máli í þessu sambandi. Við höfum heyrt talað um eins konar þjóðarsjóð sem gæti tekið á alvarlegum áföllum auk annars. Meðal þeirra áfalla eru auðvitað áföll sem ekki stafa af eldgosum eða jarðskjálftum, heldur annaðhvort vegna óvæntra atburða í veðurfari eða ágangs sjávar eða annars slíks.
Einnig er verið að setja fram orkustefnu og stuðla að hraðari orkuskiptum en ella og það eru enn fremur mjög jákvæð skref. Verið er að vinna að ýmiss konar aðgerðum til að minnka losun. Það snertir samgöngur á landi, bæði með því að auka þátt raforku í samgöngum á landi, en eins er leitað annarra leiða eins og að framleiða innlent eldsneyti sem getur nýst til þess að minnka losun frá samgöngum. Það á jafnt við um sjósókn eða fiskiskip og bíla, jafnvel flutningaskip og fleira. Síðast en ekki síst þarf að fara að hyggja að því að breyta hlutfalli flutninga á sjó og landi eftir því sem þessum orkuskiptum fleygir fram.
Við þurfum líka að horfa til flugsins. Þar eru breytingar í aðsigi. Nú eru nýir orkugjafar að koma fram í flugi. Ég hef heyrt af fyrstu níu manna rafknúnu flugvélinni sem verið er að þróa í Noregi sem ætluð eru til farþegaflugs. Við horfum til almenningssamgangna sem eru auðvitað eitt af mikilvægu atriðunum í að minnka losun úr samgöngum. Mig langar að nefna þar til viðbótar byggingariðnaðinn. Það er gömul þumalputtaregla að eitt tonn af steinsteypu sem framleidd er, komin á sinn stað og farin að storkna, losar eitt tonn af koldíoxíði, sem er gróðurhúsalofttegund. Þannig að það er mjög mikilvægt að breyta viðmiðum í byggingariðnaði þannig að tré og ýmsir aðrir nothæfir byggingarmiðlar verði nýttir í miklu meiri mæli en nú er.
Orkufrekur iðnaður er líka inni í myndinni. Þar er að mínu mati álitamál hvort ekki þurfi að skylda orkufrekan iðnað til að binda útblástur, þá á ég aðallega við gróðurhúsaútblásturinn sjálfan, þ.e. koldíoxíð, t.d. frá kísilveri, frá álveri. Það er jú þekkt að niðurdæling á slíkum efnum frá varmaorkuverum hefur gengið mjög vel. Það kostar að vísu peninga, en eins og ég sagði áðan er engin undankoma þegar kemur að því að þurfa að greiða fyrir minnkandi hlýnun.
Einnig er verið að þróa ýmsar nýjungar í t.d. álverum, ný kolaskaut sem gera það að verkum að það verður mun minni losun koldíoxíðs frá slíkri stóriðju. Allt þetta verður að koma til álita þegar við hugsum fyrir framtíðinni.
Það eru mikil tækifæri svo í bindingunni sjálfri, svo ég komi að henni líka. Við erum með aukin framlög til skógræktar. Að mínu mati þyrftu þau að vera töluvert miklu hærri en þau eru. Þar eru bæði íslensku náttúruskógarnir, birki og annað slíkt, en líka það sem ég hef kallað framleiðsluskóga, ég vil ekki kalla það nytjaskóga af því að nytjar eru svo margvíslegar, en skógar þar sem farið verður út í beina timburframleiðslu. Nú um stundir eru þeir 54 km² á öllu landinu. Það er blettur sem er rúmlega fimm sinnum 10 km á kant. Það er talið að 700–800 km² þurfi til þess af gömlum skógi, nógu öldruðum skógi, til þess að við getum orðið okkur næstum því sjálfum okkur næg í timburframleiðslu eða timburvöruframleiðslu. Menn geta séð fyrir sér 20 sinnum 40 km blett sem búið er að dreifa vítt og breitt um landið. Ekki færi stærri hluti landsins undir þá skógrækt en það.
Þegar kemur að landgræðslu er um að ræða bæði laskað land sem græða þarf upp vegna þess að það losar koldíoxíð, og uppgræðslu auðna þar sem við á. Það eru gríðarleg tækifæri í þessu tvennu. Þegar kemur að votlendi — þrátt fyrir að við höfum ekki skoðað mjög vandlega hvað þær átta tegundir af mýrlendi sem til eru á Íslandi losa, sérstaklega miðað við hvenær þær voru framræstar, hvernig aldur framræsingarinnar kemur inn í, þá vitum við engu að síður af erlendum mælingum að endurheimt votlendis er árangursrík og ódýr aðgerð við að binda kolefni.
Mig langar líka að benda á nýjungar í þessu sambandi sem við þurfum að horfa til, og ég kalla nýjungar af því að við höfum svo sem ekki horft mikið til þess, vegna innflutnings matvæla. Það er nefnilega þannig að það skiptir verulegu máli hvort matvæli eru heimafenginn baggi eða innfluttur baggi þegar kemur að losun koldíoxíðs á heimsvísu. Við eigum ekki að vera eftirbátar annarra þar og horfa á innflutning matvæla í þessu skyni, ekki einungis út frá því hvort matvaran er ódýr eða ekki ódýr, eða holl eða ekki holl, heldur beinlínis hvaðan hún kemur á hvaða tíma.
Annað sem mig langar að benda á er að það er sífreri á Íslandi, það er ein tegund mýrlendis af þeim átta sem ég nefndi. Allir vita hvað sífreri er. Það er klakalag í jarðvegi sem ekki þiðnar yfir sumarið. Sífreri á Íslandi er til á stöðum eins og Þjórsárveri, við Kringilsárrana, þar sem er sígilt landslag sífrera. En sífreri er líka uppi á fjöllum, það er t.d. sífreri uppi á Esju. Þegar sífrerinn þiðnar um of, hann þiðnar alltaf aðeins yfir sumarið, en ef hann fer að þiðna að fullu og öllu æ dýpra niður í lagið þá losnar metan. Og allir vita, eða a.m.k. er það komið inn í umræðuna, að metan er mjög óæskileg gróðurhúsalofttegund. Það verður að hyggja að því, bæði að vita hvar sífrerinn er á landinu og eins að stunda þar þær mælingar sem nauðsynlegar eru til að fylgjast með því.
Þá skiptir losun úr lífrænum úrgangi líka verulegu máli. Allir vita að Sorpa framleiðir metangas á bíla úr slíkum úrgangi, en nú er hægt að ná utan um það, bæði með því að fara út í jarðgerðarstöðvar og metanstöðvar, eins og nýju stöðvar Sorpu, og eins að framleiða metan úr koldíoxíði úr varmaorkuverum eins og Hellisheiði, til þess að nota í bíla. Allt er þetta liður í ákveðinni bindingu kolefnis. Og meira að segja þegar kemur að metanlosun jórturdýra eru nýsköpunarverkefni á þá lund að fæðubótarefni sem gefin væru jórturdýrum geta minnkað þessa losun verulega mikið.
Ég nefni þetta allt hérna vegna þess að það ívilnunarfrumvarp sem ég færi hér fram er bara lítið skref af mörgum sem við þurfum að taka.
Þegar kemur að þætti sveitarfélaga er það jú þannig að hvert sveitarfélagið á fætur öðru er að vinna sér umhverfisáætlanir og þar eru unnar loftslagsáætlanir sömuleiðis. Ég get nefnt sem dæmi að Samband sveitarfélaga á Suðurlandi hefur tekið utan um þau sveitarfélög sem þar heyra undir og sett fram mjög metnaðarfulla umhverfisáætlun. Allt skiptir það gríðarlega miklu máli og sum sveitarfélög eins og Reykjavíkurborg sjálf er jú aðili að því sem heitir Parísarsamningurinn — ekki Parísarsamkomulagið heldur Parísarsamningurinn — sem er alþjóðlegt samkomulag sveitarfélaga eða borgarsamfélaga og stórra fyrirtækja á heimsvísu. Þetta er allt saman mjög mikilvægt vegna þess að það er ekki þannig að stjórnvöld og ríkið eitt sjái okkur fyrir nægilegu púðri í baráttunni gegn hlýnun loftslagsins, heldur verða sveitarfélögin að koma þar inn í. Þriðji aðili eru auðvitað fyrirtækin. Fjórði aðili erum við sjálf. Þegar kemur að þætti fyrirtækja er jafnvel hægt að hugsa sér einhvers konar ívilnun þegar um er að ræða kolefnisgjald, segjum af útgerð, að hluti af því gæti gengið til kolefnisjöfnunar. En í því frumvarpi sem hér er, er verið að horfa til tekjuskattsins. Þar eru þá framlög fyrirtækja innifalin í andófinu gegn hlýnun loftslagsins.
Ég ætla að grípa hérna aftur ofan í greinargerðina, með leyfi forseta:
„Framlögin geta verið í formi kolefnisjöfnunar starfsemi fyrirtækja í samvinnu við Kolvið, samstarfssamning um kolefnisbindingu, sjálfboðaliðastörf starfsmanna eða fjárframlög, þ.e. styrkir til samtaka eða stofnana sem vinna á þessum vettvangi. Sem dæmi má nefna Skógræktina eða skógræktarfélög, Landgræðsluna og Votlendissjóðinn. Einnig má nefna að fyrirtæki, t.d. í byggingariðnaði eða í verkefnum með þungavinnuvélum, hafa sýnt áhuga á að fá verkefni við endurheimt votlendis og vinna þau án þess að fá greitt fyrir. Framlag þeirra væri þá metið til fjár, þ.e. einungis kostnaður vegna ferða og fæðis starfsmanna.
Framlög fyrirtækja til aðgerða sem gagnast kolefnisjöfnun eru ekki frádráttarbær rekstrarkostnaður. Í samræmi við breyttar aðstæður í loftslagsmálum og ríkan vilja í samfélaginu er með frumvarpinu því lögð til breyting á 31. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, sem heimilar frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri. Lagt er til að heimilt verði, með skilyrðum, að bein framlög til kolefnisbindingar eða kolefnisjöfnunar megi reiknast sem frádráttarbær rekstrarkostnaður atvinnurekstrar, allt að 0,85% af tekjum samkvæmt B-lið 7. gr.
Ég ætla að fá að lesa B-lið 7. gr. svo ekkert fari á milli mála. Hann hljóðar svo:
„Allar tekjur af atvinnurekstri og sjálfstæðri starfsemi, þar með talið endurgjald fyrir selda vöru og þjónustu, umboðslaun, þóknanir, atvinnurekstrarstyrkir, rekstrarstöðvunarbætur og hvers konar tekjur sem upp eru taldar í öðrum liðum þessarar greinar og tengdar eru atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi.“ — Svo menn hafi það á hreinu.
Til samanburðar má nefna að heimild til frádráttar er allt að 0,75% af tekjum þegar t.d. um góðgerðarstarfsemi er að ræða. Það er þá í 2. tölulið 31. gr. þessara laga, þannig að við klífum aðeins yfir góðgerðarstarfsemina og fáum þarna 0,85% í frádrátt.
Í frumvarpinu er lagt til að ráðherra setji reglur um framkvæmd ákvæðisins, svo sem um hvort bókhaldsskyldur aðili, fyrirtæki eða einyrki með skattskylda starfsemi, skuli leggja fram staðfestar upplýsingar um slík framlög, fjárhæð framlagsins, hvað felst í því og hvers eðlis það er, t.d. hvort um sé að ræða bein fjárframlög til samtaka eða stofnana, greiðslur vegna ferða og fæðis starfsmanna o.s.frv., til hvers framlagið beinist, hvenær og eftir atvikum hvar það er innt af hendi, auk staðfestingar móttakanda framlagsins á móttöku þess og öðrum atriðum því tengdum. Þá skuli setja nánari fyrirmæli um frádrátt samkvæmt ákvæðinu, þar með talið hvaða upplýsingar beri að leggja fram við framtals skatts og tilgreina nánar hvaða skilyrði sjóðir, sjálfseignarstofnanir og samtök þurfi að uppfylla til að falla undir gildissvið ákvæðisins, sem og til hvaða aðgerða í rekstri aðilar í atvinnurekstri geta gripið.
Þá kemur rúsínan í pylsuendanum:
„Nauðsynlegt er að framkvæmdin vegna frádráttar verði bæði skýr og gagnsæ svo að hún nái sannarlega markmiði sínu og leiði ekki til misnotkunar á heimildinni. Þá telja flutningsmenn æskilegt að umsókn um frádrátt verði hluti af áætlun um losun og kolefnisjöfnun umsækjanda.“
Ég les þetta úr greinargerðinni. Þetta virðist vera dálítið torf. Ráðuneytinu er sett fyrir að vanda til gerðar þeirrar reglugerðar sem um verður þetta sett. En hvað um það.
Markmiðið er ljóst með þessu — ég ætla nú að leyfa mér að kalla þetta hænuskref, ég ætla að leyfa mér að kalla þetta lítið skref, þverpólitískt, lítið skref. Markmiðið er að standa við Parísarsamkomulagið og síðast en ekki síst hið metnaðarfulla markmið ríkisstjórnarinnar og vonandi okkar allra, að Ísland verði kolefnishlutlaust fyrir 2040, sem er sennilega metnaðarfyllsta slíka markmiðið sem enn þá finnst meðal þjóða, ég þekki ekki annað svipað.
Það kostar það að sjálfsögðu að við þurfum að birta tölur reglulega um hvernig okkur gengur, hvernig þessu vindur fram og árangursmeta heiðarlega hvernig þessum tveimur markmiðum verður náð í ótal skrefum héðan í frá.
Mig langar þá að nefna það í framhjáhlaupi að Norðurskautsráðið hefur gert samþykkt um að norðurslóðalöndin átta skuli flýta viðbrögðum sínum nokkuð verulega fyrir 2030, þ.e. þetta er hvatning um að við gefum í miðað við það sem við höfum haft í hyggju. Þetta er svona vinsamlegt klapp á öxlina frá þeim þjóðum sem allt eiga undir loftslagsframvindunni og bráðnun íss á norðurslóðum.
Það hefur stundum komið fram gagnrýni á — ja, við skulum segja hvort það er ríkisstjórnina eða bara okkur Íslendinga, við getum kallað sjálfsgagnrýni. Þetta kemur fram hjá pólitískum flokkum. Þetta kemur fram á netinu. Það kemur fram í fjölmiðlum að við gerum ekki nægilega vel. Það er auðvitað eitt og annað til í slíkri gagnrýni. En það er líka mjög alvarlegt ef verið er að tala niður þau skref sem þó er verið að taka, hvort sem það er plastáætlun ríkisstjórnar eða loftslagsáætlun ríkisstjórnar, því að ef um er að ræða hlutlæga gagnrýni finnst mér að það sé samfélagsskylda þeirra sem gagnrýna, ég er ekkert endilega að tala um einstaklinga, en a.m.k. ef það eru félagasamtök eða pólitískir flokkar sem í hlut eiga, að koma með uppbyggilegar tillögur um hvað betur mætti fara. Við erum ákveðin í því í fyrsta lagi að vera hlutlæg og að taka höndum saman um að ná þessum markmiðum þó að þau séu ekki endilega að frumkvæði allra. Þetta eru hvort tveggja markmið sem eru samfélaginu lífsnauðsynleg á Íslandi, annaðhvort markmið Parísarsamkomulagsins, sem hafa verið gagnrýnd, eða markmiðið um kolefnishlutlaust Íslands, sem ég hef reyndar ekki séð gagnrýnt. En það er algjörlega meitlað í stein að verði ekki þverpólitísk sátt og þverpólitísk hlutlæg gagnrýni okkur sem verkfæri munum við ekki ná þessum göfugu markmiðum.
Ég held að ég láti þessum langa flutningi á þessu litla frumvarpi lokið og segi við herra forseta: Ég hef lokið máli mínu.