149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

uppgræðsla lands og ræktun túna.

397. mál
[18:22]
Horfa

Flm. (Þórunn Egilsdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur enn og aftur fyrir ágætisandsvar. Ég held að við getum öll verið sammála um að ef við ætlum að horfa til framtíðar þá þurfum við að hafa landið allt í byggð. Við þurfum að gæta vel að auðlindunum í landinu og allt land er auðlind. Það er kannski það sem við höfum verið að horfa á aðeins breyttum augum. Hefðbundinn búskapur? Hvað er það? Búskapur er mjög fjölbreyttur. Fólk ákveður að setjast niður á jarðir í mismunandi tilgangi og ætlun. Hefðbundinn búskapur er enn til staðar. Búin hafa breyst, öll tækni hefur breyst og allir búskaparhættir, en það er líka búskapur að vera ferðaþjónustubóndi. Menn geta verið að stunda veiðar eða verið í fjölbreyttum búskap, þetta er ekki bara að vera með ær og kýr. Það hefur orðið stór breyting á því.

Við þurfum að taka þátt í því að græða landið og það eru fjöldamargir, eins og ég kom að áðan í ræðu minni, eða upp undir 600 þátttakendur í Bændur græða landið. Fjöldamargir skógarbændur taka þátt í því verkefni.

Ég tek algerlega undir það með hv. þingmanni að við eigum að byggja okkar starf og framtíðarvinnu á vísindalegum grunni, byggja á þeirri þekkingu sem við höfum, sækja í reynslubrunn þeirra sem yfir mestu þekkingunni búa og byggja á henni og setja fram með vísindalegum rökum. Þekkingin er það sem við byggjum á inn í framtíðina, þekkingin og kunnáttan sem við þurfum að viðhalda. Við megum ekki glata henni niður. Og svo þurfum við að vera opin fyrir nýjungum og nýsköpun.

En svo þurfum við ekki alltaf að finna upp hjólið. Menn hafa í langan tíma notað þessa aðferð sem ég var að tala um áðan til að rækta land, loka jarðvegi og byggja upp landið.