149. löggjafarþing — 73. fundur,  1. mars 2019.

hvalveiðar.

[10:32]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Ég vil ræða hvalveiðar og spyrja hæstv. forsætisráðherra aðeins út í þær. Högni okkar í Hjaltalín segir m.a. í Fréttablaðinu í gær að það eigi augljóslega að ræða betur það brýna samfélagslega vandamál sem hvalveiðar eru og ákvörðun sjávarútvegsráðherra um framhald á hvalveiðum og að við getum gert miklu betur. Við vitum það líka að eftir að Lewis Hamilton, ökuþórinn, setti á sína síðu ákveðin mótmæli og undrun vegna þessarar ákvörðunar sjávarútvegsráðherra hafa yfir milljón manns horft á það. Það er greinilegt að veröldin hvað þetta varðar er einhvern veginn miklu minni. Við getum ekki ákveðið hluti í skjóli nætur eins og stundum hefur verið.

Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra um þrennt. Hæstv. umhverfisráðherra vissi ekki af þessari ákvörðun, það var ekkert samráð eða samtal greinilega miðað við orð hans um þessa ákvörðun. Telur forsætisráðherra það vera ásættanleg og góð vinnubrögð?

Í öðru lagi vil ég spyrja forsætisráðherra: Telur hún veiðarnar vera sjálfbærar í sinni víðustu mynd, ekki bara út frá veiðiþoli heldur telur hún þær vera efnahagslega sjálfbærar og telur hún þær heppilegar og sjálfbærar í samhengi við dýravernd og dýraverndunarsjónarmið?

Og í þriðja lagi: Ætlar forsætisráðherra að beita sér fyrir því að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra endurskoði ákvörðun sína um framhald hvalveiða til næstu fimm ára? Ég minni á að Ísland verður þá eina ríkið í heiminum sem mun veiða næststærsta spendýr á jörðinni, langreyði. Mig langar að spyrja forsætisráðherra þessara þriggja spurninga og ég óska þess að fá svar við þeim öllum.