149. löggjafarþing — 73. fundur,  1. mars 2019.

hvalveiðar.

[10:37]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Forsætisráðherra svaraði ekki mikilvægustu spurningunni, um það hvort hún ætlaði að beita sér fyrir breytingu á ákvörðun sjávarútvegsráðherra, ekki síst í ljósi þess sem hæstv. forsætisráðherra sagði hér áðan, að hún teldi þetta ekki fullnægjandi mat. Ég hefði talið að það eitt fyrir utan stefnu Vinstri grænna í þessu máli ætti að vera nægjanlegt til þess að forsætisráðherra fari fram á að þetta verði endurskoðað. Og miðað við þeirra eigin orð hefði ég líka talið að það skipti máli hverjir fara með stjórnina og verkstjórnina í ríkisstjórn.

Ég spyr hæstv. forsætisráðherra aftur: Mun forsætisráðherra beita sér fyrir breytingum á þessari ákvörðun sjávarútvegsráðherra? Ef forsætisráðherra ætlar ekki að gera það liggur í augum uppi að spyrja líka: Var stjórnarslitum hótað út af þessu máli?

Hver er þessi þungi að ekki sé hægt að endurskoða málið? Þetta hefur verið fram til þessa hjartans mál hjá Vinstri grænum. Þess vegna spyr ég ítrekað: Mun forsætisráðherra beita sér (Forseti hringir.) fyrir breytingu á ákvörðun sjávarútvegsráðherra varðandi framhald á hvalveiðum?