launahækkanir bankastjóra ríkisbankanna.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir og kem þá að mínu seinna atriði sem varðar stöðu barna. Þetta er nefnilega merkileg skýrsla sem var birt í gær um stöðu og lífskjör íslenskra barna á árunum 2004–2016. Í skýrslunni kemur líka fram að þær aðgerðir sem hefur verið gripið til á undanförnu einu og hálfu ári munu reynast mikilvægar til að snúa vörn í sókn í málefnum barna. Þar vísa ég sérstaklega til barnabóta en fram kemur hjá skýrsluhöfundi að þótt rannsóknin sé til 2016 hafi verulega verið aukið við barnabætur um síðustu áramót og skerðingarhlutföllum breytt þannig að það nýtist fremur hinum tekjulægri í hópi foreldra, sem er mikilvægt.
Sömuleiðis er bent á í skýrslunni að greiðslur í fæðingarorlofi hafi verið hækkaðar, en það nýtist ekki endilega lágtekjuhópunum. Skýrsluhöfundur nefnir fernt sem er þess virði fyrir stjórnvöld að skoða sérstaklega til að bæta lífskjör barna. Lenging fæðingarorlofs er þar á meðal, en á stefnuskrá núverandi ríkisstjórnar er að grípa til þess af því að brúa þarf (Forseti hringir.) umönnunarbilið. Það þarf að horfa til framtíðarstefnumótunar í barnabótum. Síðan er ýmislegt sem við þurfum að vinna á sviði sveitarfélaganna og þar nefnir skýrsluhöfundur gjaldfrjálsar skólamáltíðir og niðurgreiðslu tómstundastarfs, hvort tveggja mjög mikilvægt fyrir börnin í landinu.