149. löggjafarþing — 73. fundur,  1. mars 2019.

minning þeirra Íslendinga sem fórust í seinni heimsstyrjöldinni.

83. mál
[11:54]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni fyrir þessa tillögu og fyrir að flytja hana hér, þetta er sannarlega þarft og gott mál. Hann lýsti því ágætlega hér og það kemur ágætlega fram í greinargerðinni hversu mikil áhrif þetta hefur haft á Íslendinga og íslenska þjóð og sjálfsagt og eðlilegt að minnast þeirra fórna sem Íslendingar færðu í þessu stríði og þeirra fjölskyldur. Við þekkjum það erlendis að þar eru veglegir minningarreitir. Þeirra einstaklinga sem fórna sér í stríði fyrir sína þjóð er minnst með virðulegum og veglegum hætti.

Hv. þingmaður minntist einmitt á minnismerkið í Washington þar sem Bandaríkjamenn minnast þeirra sem létust í stríðinu í Víetnam. Þar eru nöfn allra rituð á langan vegg og það er mjög áhrifamikið minnismerki. Ég fagna því að þessi tillaga er komin fram. Þetta er mjög þarft og mikilvægt verkefni hvað það varðar að minnast þeirra hörmunga sem gengu yfir Evrópu á þessum tíma og okkar fórna í þeim efnum. Mig langaði að koma aðeins inn á eitt sem ég er að velta fyrir mér hvort hefði ekki einnig átt að vera í þessari tillögu.

Þann 11. nóvember á síðasta ári voru 100 ár frá því að fyrri heimsstyrjöldinni lauk. Það var stríð sem stóð í fjögur ár og var með eindæmum tilgangslaust, stríð sem kostaði hátt í 16 milljónir manna lífið. Það vill svo til að það voru Vestur-Íslendingar sem börðust í því stríði og töluverður fjöldi af þeim var ungir piltar fæddir á Íslandi. Þarna voru þeir skyndilega komnir í skelfilegar aðstæður þar sem ekkert beið þeirra nema ískaldur dauðinn. Þeir upplifðu hræðilegt blóðbað, miklar þjáningar í skotgröfum þess tíma þegar eiturgasi var beitt. Það eru til mjög áhrifarík bréf og einlæg frá þessum tíma, frá þessum ungu Íslendingum, bréf sem þeir rita til ástvina sinna þar sem þeir lýsa söknuði og ótta og einmanaleika. Það er mjög áhrifaríkt. Þeir lýsa því hvernig stríð setur manninn í grimmd, heift og hatur og tekur burt mannúðina og alla sómatilfinningu. Sú mynd sem blasti við þessum ungu piltum var skelfileg áður en þeir gengu út í opinn dauðann. Það var algeng trú manna, hvað fyrri heimsstyrjöldina varðar, að hún myndi binda enda á öll stríð og það stríð yrði öðrum víti til varnaðar í framtíðinni. En raunin varð allt önnur eins og við þekkjum.

Svo ég víki aðeins aftur að þessari tillögu finnst mér að við ættum að hugsa það hvort ekki ætti einnig að minnast þessara ungu Íslendinga sem börðust í fyrri heimsstyrjöldinni með einhverjum hætti. Það eru til upplýsingar um 1.245 Vestur-Íslendinga sem tóku þátt í fyrri heimsstyrjöldinni, 989 þeirra börðust fyrir Kanadaher og 256 fyrir bandaríska herinn. Þar eru m.a. frásagnir frá 14 vestur-íslenskum hjúkrunarkonum sem tóku þátt í þessu stríði og fórnuðu lífi sínu.

Til er Minningarrit íslenzkra hermanna, það gengur undir því nafni, frá 1914–1918, um þá sem tóku þátt í fyrri heimsstyrjöldinni. Sú bók var gefin út í Winnipeg í Kanada árið 1923 og er mjög fróðlegt rit. Það létust 144 Vestur-Íslendingar í fyrri heimsstyrjöldinni. Þar af var 1/3 þeirra fæddur á Íslandi. Í stríðinu öllu dóu rúmlega 15 milljónir manna.

Ég vildi vekja athygli á þessu, herra forseti. Mér finnst það tilhlýðilegt vegna þess að þetta mál er rætt hér um síðari heimsstyrjöldina og að minnast Íslendinga sem þar fórust. Ég styð þá tillögu heils hugar og fagna þessari tillögu sérstaklega. Það eru margar góðar upplýsingar í þessari tillögu. Við sjáum að sjómenn hafa sérstaklega fórnað lífi sínu í þessum hörmungum, þessu stríði sem við þekkjum öll. Það er minna rætt um fyrri heimsstyrjöldina þó að þessi tímamót hafi verið á síðasta ári, 100 ár frá því að henni lauk og 100 ár eru nú langur tími. Í raun og veru, ef við hugsum til baka, er það stuttur tími og ótrúlegt hvernig það unga fólk sem var hér á Íslandi og fluttist vestur um í leit að betra lífi fylltist þjóðerniskennd og vildi standa með sínu nýja heimalandi og fór svo út í stríð sem fáir áttu afturkvæmt úr. Ég held að það sé tilhlýðilegt að við minnumst þeirra með einhverjum hætti. Það má þá kannski vera aðskilið mál en mér þótti rétt að minnast á þetta.

Í bókinni sem ég nefndi er fjallað rækilega um líf og örlög þessara Vestur-Íslendinga sem tóku þátt í fyrri heimsstyrjöldinni eins og ég nefndi. Að öðru leyti þakka ég fyrir þessa tillögu og vil úr þessum ræðustól hvetja til þess að það verði skoðað hvort ekki sé rétt að minnast þeirra ungu Íslendinga sem tóku þátt í fyrri heimsstyrjöldinni á einhvern hátt.