149. löggjafarþing — 73. fundur,  1. mars 2019.

lágskattaríki.

51. mál
[14:13]
Horfa

Flm. (Smári McCarthy) (P):

Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um lágskattaríki. Þingsályktunartillagan var áður flutt á 147. og 148. þingi en var ekki afgreidd og er hún því endurflutt óbreytt. Ég ætla að koma aðeins inn á það á eftir að frá því að málið var lagt fram og þar til nú hefur ýmislegt gerst hér á þinginu sem verður til þess að hluti af málinu er kannski ekki nauðsynlegur lengur, en þá getum við væntanlega rétt úr því í meðförum nefndarinnar.

Með tillögunni er lagt til að fjármála- og efnahagsráðherra leggi fyrir Alþingi frumvarp með tilgreindum breytingum á lagareglum um lágskattaríki. Í fyrsta lagi er lagt til að skilgreining á lágskattaríki verði víkkuð út þannig að hún verði ekki bundin við svæði þar sem tekjuskattur af hagnaði aðila er lægri en tveir þriðju hlutar þess skatts sem hefði verið lagður á hér, samanber gildandi 2. mgr. 57. gr. a laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, heldur taki einnig til svæða sem að staðaldri veita íslenskum stjórnvöldum ekki nauðsynlegar upplýsingar fyrir framkvæmd skattalöggjafar. Skattaskjól eru oft nýtt í þágu svokallaðs „skattalegs hagræðis“, en ekki síður til að fela eignir og tekjur. Eðlilegt er að skilgreining á lágskattaríki, og þau réttaráhrif sem við hana eru bundin, nái einnig til skattaskjóla sem nýtt eru í slíkum tilgangi.

Í öðru lagi er lagt til að ráðherra birti leiðbeinandi lista yfir ríki og lögsagnarumdæmi sem líkleg eru til að falla undir skilgreiningu á lágskattaríki. Áður var kveðið á um það í 7. mgr. 57. gr. a laga um tekjuskatt að ráðherra birti lista yfir lönd og svæði sem skattlagning samkvæmt greininni tæki til. Fjármála- og efnahagsráðuneytið birti slíkan lista í desember 2010 en „með þeim fyrirvara að hann [teldist] hvorki bindandi né tæmandi talinn þar sem endanlegt skatthlutfall þeirra félaga, sjóða eða stofnana sem [hefðu] þar skattalega heimilisfesti, [lægi] ekki fyrir nema eftir nákvæma yfirferð skattyfirvalda“. Fyrirmælin voru felld brott með lögum nr. 45/2013 með vísan til þess að listinn gæti ekki orðið bindandi eða tæmandi þar sem endanlegt skatthlutfall aðila lægi ekki fyrir fyrr en eftir yfirferð skattyfirvalda. Með tilliti til þessa er hér ekki lagt til að ráðherra birti endanlegan lista yfir lágskattaríki. Ljóst er þó að sum svæði eru öllu líklegri en önnur til að falla að skilgreiningunni og gagnlegt er fyrir skattaðila og almenning að hafa upplýsingar um hver þau eru. Því er lagt til að ráðherra birti leiðbeinandi lista um þau.

Í þriðja lagi er lagt til að skattyfirvöldum skuli tilkynnt um beina og óbeina eignarhlutdeild í lögaðilum í lágskattaríkjum. Í 1. mgr. 90. gr. laga um tekjuskatt segir að í skattframtali skuli greina frá þeim atriðum sem máli skipta við skattálagningu, þar á meðal eignum, og eigendum lögaðila í lágskattaríkjum ber að skila með skattframtali sérstakri skýrslu eiganda í lögaðila á lágskattasvæði. Í skattframtali er þó aðeins greint frá eignum í árslok. Með því að mæla fyrir um tilkynningarskyldu um beina og óbeina eignarhlutdeild í lögaðilum í lágskattaríki verður skattyfirvöldum auðveldað að gera sér grein fyrir stöðunni hverju sinni. Það myndi færast nær rauntíma. Það ætti að auðvelda skatteftirlit sem er sérstaklega þýðingarmikið þegar kemur að lágskattaríkjum. Sem dæmi að ekki sé hægt að kaupa sig inn í eitthvað í byrjun árs, losa sig út úr því rétt fyrir lok árs og komast þar með fram hjá raunverulegri tilkynningarskyldu í praxís.

Í fjórða lagi er lagt til að greiða skuli sérstakt eftirlitsgjald í ríkissjóð vegna beinnar og óbeinnar eignarhlutdeildar í lögaðilum í lágskattaríkjum. Slíkri eignarhlutdeild fylgir óhjákvæmileg þörf á miklu og flóknu skatteftirliti. Eðlilegra er að viðkomandi aðilar standi undir kostnaði vegna þess en almennir skattgreiðendur.

Ég sagði í upphafi að málið væri e.t.v. að einhverju leyti orðið úrelt vegna mála sem eru til meðferðar í þinginu í augnablikinu. — Það er kannski rétt að taka fram að meðflutningsmenn mínir á málinu eru Björn Leví Gunnarsson, Halldóra Mogensen, Jón Þór Ólafsson og Sara Elísa Þórðardóttir.

Það eru mál, og meira að segja frumvarp í efnahags- og viðskiptanefnd um þessar mundir sem tekur á alla vega tveimur af þessum punktum, þ.e. varðandi tilkynningarskylduna annars vegar og hins vegar útvíkkun á því hvaða ríki eru skilgreind sem lágskattaríki.

Það á eftir að koma í ljós með hvaða hætti nákvæmlega þetta kemur til með að raungerast og koma til síðari umr. en það er engu að síður ágætt að efnahags- og viðskiptanefnd taki þetta fyrir og skoði aðeins nánar hvernig við getum stillt þetta af og ekki síst í ljósi þess að orðin er verulega knýjandi þörf á að við tökum fyrir allar gjaldskrár ríkisins almennt og skoðum hvaða eftirlit og raunveruleg þjónusta við tiltekna aðila kostar í peningum og hversu mikið það kostar að raunvirði.

Ég hef t.d. mikla trú á að kostnaðurinn við að skrá nýtt fyrirtæki sé ekki nálægt þeim 135.000 kr. sem fólk er að borga fyrir það, en kostnaðurinn af því að fylgjast með eignum fólks í skattaskjólum sé í rauninni töluvert meiri en þær 0 kr. sem það fólk er að borga fyrir þær í dag.

Að þessu sögðu legg ég til að málinu verði vísað til efnahags- og viðskiptanefndar svo að við getum farið yfir það þar og síðan í síðari umr.