149. löggjafarþing — 74. fundur,  4. mars 2019.

varamenn taka þingsæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá 3. þm. Suðvest., Rósu Björk Brynjólfsdóttur, um að hún geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag, mánudaginn 4. mars, tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hana Fjölnir Sæmundsson, 2. varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, en 1. varamaður hefur boðað forföll.

Hann hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.