149. löggjafarþing — 74. fundur,  4. mars 2019.

rannsókn kjörbréfs.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá 4. þm. Reykv. s., Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, um að hún geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því er óskað eftir að í dag taki Katla Hólm Þórhildardóttir sæti á Alþingi. Hún er 2. varamaður á lista Pírata í kjördæminu, en 1. varamaður hefur boðað forföll.

Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Kötlu Hólm Þórhildardóttur. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til að fjalla um kjörbréfið.