149. löggjafarþing — 74. fundur,  4. mars 2019.

vinnumarkaðsmál.

[15:03]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Forseti. Fyrir nokkru síðan kynnti ríkisstjórnin tillögur sínar til að koma til móts við stöðuna á vinnumarkaði og óhætt er að segja að þær hafi ekki fengið jákvæðar viðtökur hjá fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar. Ég hef áður rætt þá möguleika sem gætu falist í því að horfa til vaxta og verðtryggingar og stöðu fjármálakerfisins í samhengi við kjaraviðræður en enginn áhugi virðist vera á því af hálfu ríkisstjórnarinnar og hún raunar útvistað því verkefni eða vangaveltum um þau mál annað.

Þess vegna er spurning mín til hæstv. forsætisráðherra einföld: Kemur til greina að endurskoða tillögur ríkisstjórnarinnar eða bæta við þær? Kemur til greina að endurskoða þær tillögur sem hafa verið kynntar nú þegar eða að bæta einhverju við þær tillögur til að liðka fyrir á vinnumarkaði?