149. löggjafarþing — 74. fundur,  4. mars 2019.

vinnumarkaðsmál.

[15:04]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Þær tillögur sem við höfum unnið að á undanförnum mánuðum eru hugsaðar sem almennar umbótatillögur fyrir samfélagið en líka til að greiða fyrir kjarasamningum í ljósi þess að margar af þessum tillögum ríma við þær áherslur sem til að mynda verkalýðshreyfingin hefur lagt fram. Þær hafa snúist um eftirfarandi þætti: Um uppbyggingu félagslegs húsnæðiskerfis, uppbyggingu sem hv. þingmaður þekkir vel því að fyrstu skrefin að almenna íbúðakerfinu voru auðvitað stigin undir hans forsæti á sínum tíma, en tillögurnar núna eru víðfeðmari og snúast líka um vernd leigjenda og uppbyggingu sterkari leigumarkaðar fyrir fólk þannig að fólk hafi aukið val. Í öðru lagi snúast þær um lengd fæðingarorlofsins, að raunveruleg skref verði núna stigin til þess að lengja fæðingarorlofið upp í 12 mánuði sem er risastórt lífskjaramál fyrir ekki síst ungt barnafólk. Í þriðja lagi eru það skattatillögur sem hafa verið hvað mest til umfjöllunar að undanförnu sem snúast um að innleiða nýtt lágtekjuþrep til að koma til móts við tekjulægri hópa og jafna sömuleiðis viðmiðin í skattkerfinu þannig að við sjáum ekki það skattskrið sem hefur verið gagnrýnt.

Hv. þingmaður spyr hvort komi til greina að bæta einhverju við: Já, það er unnið að tillögum um að greiða aðgang fólks inn í svokölluð fyrstu kaup á fasteignamarkaði því að það liggur auðvitað fyrir að verulegur hluti þeirra sem eru t.d. á leigumarkaði vill fara inn á eignamarkað. Hins vegar viljum við eiga samtal við verkalýðshreyfinguna og atvinnurekendur um þau málefni sem hv. þingmaður nefndi sérstaklega, þ.e. málefni verðtryggingarinnar og vaxtastig í landinu. Þannig að, já, það kemur til greina.

(Forseti (SJS): Forseti biðst velvirðingar á því að tímatökukerfið er frosið, en ég er hér með forláta armbandsúr og reyni eftir atvikum að vera sanngjarn í þeim efnum.)