149. löggjafarþing — 74. fundur,  4. mars 2019.

áhrif loftslagsbreytinga á íslenska náttúru.

[15:17]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég tek undir það sem kom fram í máli þingmannsins, að umhverfismálin eru mjög fyrirferðarmikil í dag og ekki síst þegar við horfum til nánustu framtíðar og reyndar langrar framtíðar líka.

Hér var nefnt Evrópusamstarf. Við tökum talsvert margt upp af tilskipunum frá Evrópusambandinu hvað varðar umhverfismál og margt af því hefur fært okkar löggjöf fram á veg. Þó er ekki allt sem kemur þar í gegn, eins og náttúruvernd og annað sem við höfum sjálf búið mjög vel um hér heima að mínu mati.

Hv. þingmaður spurði um heildstæð áhrif á náttúru og auðlindir og þá út frá loftslagsmálum fyrst og fremst, ef ég skildi hv. þingmann rétt. Þar ber fyrst að nefna að reglulega vinnur Veðurstofan í samstarfi við marga aðra aðila vísindaskýrslu og hafa núna þrjár verið gefnar út, sú síðasta í fyrra. Ég kem væntanlega í mars með frumvarp á þingið þar sem ég vil festa akkúrat þetta atriði í sessi, að tryggt sé að farið sé yfir þau áhrif sem loftslagsbreytingar hafa bæði á náttúruna og auðlindir.

Ég vil nefna eitt í því sambandi sem við Íslendingar erum ekki komin nógu langt í en verið er að vinna að í ráðuneytinu. Á sama tíma og okkur hefur auðnast að koma út aðgerðaáætlun, sem líka var nefnt af hv. þingmanni að nauðsynlegt væri að vinna í aðgerðum, þarf að vinna áætlun um aðlögun að loftslagsbreytingum sem kemur inn á mjög mörg svið, kemur inn á allt það sem lýtur að t.d. hækkun sjávarstöðu og áhrif þess á samfélag, innviði og þar fram eftir götunum. Loftslagsráð, sem ég skipaði í júní (Forseti hringir.) í fyrra, vinnur að tillögum um það hvernig best sé að vinna að slíkri áætlun.