149. löggjafarþing — 74. fundur,  4. mars 2019.

áhrif loftslagsbreytinga á íslenska náttúru.

[15:20]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég þakka fulltrúa ríkisstjórnarinnar kærlega hlý orð í garð Evrópusambandsins og síðan langar mig að beina í seinni umferð orðunum aðeins að hagrænum hvötum. Ég er ekki bara að tala um hærri kolefnisgjöld heldur líka þá staðreynd að við þurfum að stuðla að sjálfbærum landbúnaði og leggja þar áherslu á sjálfbæra þróun, sem er um margt líklegri til árangurs í umhverfismálum en margt annað.

Þar langar mig að vísa sérstaklega til frumvarps hv. þingmanns og formanns Viðreisnar, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, um breytingar á búvörulögum og búnaðarlögum frá því síðasta haust, sem reyndar vakti ekki mikla lukku hjá öllum þingmönnum úr flokki hæstv. ráðherra. Þar var lagt til að útvíkka stuðning við bændur svo að hann nái til verkefna á sviði umhverfisverndar, skógræktar, nýliðunar, lokunar framræsluskurða og ferðaþjónustu. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hver sé staða slíkra framfaraskrefa innan ríkisstjórnarinnar og hvort við megum ekki búast við raunverulegum og metnaðarfullum tillögum frá hæstv. ríkisstjórn í þá veru.