149. löggjafarþing — 74. fundur,  4. mars 2019.

heilbrigðismál fanga.

[15:22]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Mig langar að eiga orðastað við hæstv. heilbrigðisráðherra um málefni sem er mér hugleikið en um er að ræða þjóðfélagshóp sem á sér ekki háværa málsvara. Um langt skeið hefur Fangelsismálastofnun gengið bónleið til heilbrigðisráðuneytisins vegna þeirra mannréttindabrota sem fram fara í fangelsum landsins, stjórnvöld virðast álíta að þarna leynist óhreinu börnin hennar Evu, vissulega sakamenn og -konur en þrátt fyrir afglöp sín og þær villigötur sem viðkomandi hafa lent á eru íslensk stjórnvöld skuldbundin til að veita þessum einstaklingum mannúðlega meðferð í afplánun.

Fangelsismálastofnun hefur ekki staðið ein í sinni baráttu heldur hefur umboðsmaður Alþingis veitt ástandinu athygli og margítrekað beint fyrirspurnum til stjórnvalda um hvernig þau ætli sér að tryggja mannréttindi fanga, þar á meðal geðsjúkra fanga, með fullnægjandi hætti. Vegna skorts á svörum, bæði frá heilbrigðis- sem og dómsmálaráðherra, leitaði umboðsmaður til forsætisráðherra með málið í von um viðbrögð. Staðan er grafalvarleg og hefur dómsmálaráðuneytið tekið undir áhyggjur stofnunarinnar og lýst því að framkvæmd laga um fullnustu refsingar tryggi ekki réttindi fanga. Íslensk stjórnvöld hafa vitað af því ástandi misserum saman en viðbrögð eru því miður engin, áhugi til úrbóta virðist ekki til staðar.

Er hæstv. heilbrigðisráðherra sammála því að þetta sé með öllu óboðleg meðferð á frelsissviptum einstaklingum? Og má spyrja hvort stjórnvöld ætli að svara því hvernig þau hugsa sér að tryggja mannréttindi þessa þjóðfélagshóps umfram það að skipa nefnd og velta málinu fyrir sér næstu misseri?