149. löggjafarþing — 74. fundur,  4. mars 2019.

heilbrigðismál fanga.

[15:28]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég geri ráð fyrir því að hv. þingmaður sé að spyrja heilbrigðisráðherra vegna þess að svarið er þar. Þegar ég segi að verið sé að ljúka samkomulagi við bæði heilsugæsluna og sérhæfðu sjúkrahúsin um fyrirkomulag slíkrar þjónustu, bæði almennrar heilbrigðisþjónustu og geðheilbrigðisþjónustu, getur hv. þingmaður treyst því að sú er raunin. Það er verið að ganga frá lausum endum í þeim efnum og stendur hvorki til að setja þetta mál í starfshópa eða bíða misserum saman né að láta fangaverði sitja uppi með verkefni sem heilbrigðisstarfsfólk þyrfti að sinna.