149. löggjafarþing — 74. fundur,  4. mars 2019.

fjórða iðnbyltingin.

[15:29]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Á föstudaginn var birt ný skýrsla um fjórðu iðnbyltinguna svokölluðu. Skýrslan er fyrir margar sakir ágæt þrátt fyrir að hún hafi ekki innihaldið margar efnislegar stefnumótunartillögur. En í skýrslunni kom þó fram að staða Íslands í menntun á sviði vísinda, tækni, verkfræði og stærðfræði er mjög slæm miðað við mörg og jafnvel flest önnur OECD-ríki. Þá má líka vænta þess að á komandi árum verði verulegar breytingar á samfélagsgerðinni vegna tækniþróunar. Ruðningsáhrif gervigreindar á atvinnulíf landsins má ekki vanmeta.

Í ljósi skýrslunnar er eðlilegt að spyrja: Hvaða aðgerða er að vænta frá ríkisstjórninni til að heltast ekki enn frekar úr lestinni í alþjóðlegum samanburði? Nú leitast flest lönd heims við að skara fram úr á sviði gervigreindar, tækniþróunar og sjálfvirknivæðingar þannig að við þurfum svolítið að vera með.

Mig langar að vita hvaða aðgerðir hæstv. forsætisráðherra telur brýnastar til að bregðast við fjórðu iðnbyltingunni, ekki bara þannig að við sitjum á einhverju meðaltali heldur þannig að Ísland hafi tækifæri til að skara fram úr.

Mig langar líka að spyrja hvernig hæstv. forsætisráðherra sér fyrir sér að almenningur muni njóta góðs af ávinningi aukinnar sjálfvirknivæðingar í samfélaginu að öllu óbreyttu og hvað þurfi að breytast til að þessi iðnbylting leiði ekki af sér jafn gríðarlega misskiptingu og sú síðasta.