störf þingsins.
Herra forseti. Ég geri fastlega ráð fyrir að allir hér inni þekki einhvern sem glímir við fíknivanda. Margar fjölskyldur lifa í skugga þessa bölvalds og þúsundir barna alast upp við vandamál á heimili. Fyrir mörg hver er afleiðingin óvissa, skömm, í versta falli vanræksla, skortur og jafnvel ofbeldi. Það hefur náðst ágætur árangur á Íslandi þegar kemur að því að halda alkóhólistum frá bokkunni og margir hafa þeir lýst hversu mikil gæfa það er fyrir þá og þeirra nánustu þegar þeir geta loks lagt hana frá sér. Við getum þakkað fjölmörgum aðilum fyrir það, ekki síst SÁÁ. Peningum til þeirra samtaka er vel varið en það skiptir máli að þessi þjónusta sé víða um land. Þessi sjúkdómur lítur nefnilega hvorki til stéttar né stöðu og unir heldur ekki íslenskum hreppamörkum. Ef einhverjum þykir það ótrúlegt er það samt þannig að það eru fjöldamargir alkóhólistar og fíkniefnaneytendur úti á landsbyggðinni.
Í fjölmörg ár hefur verið rekin göngudeild á Akureyri á vegum SÁÁ. Hefur kostnaður verið u.þ.b. 20 milljónir á ári og þar af hefur Akureyrarbær borgað 5 milljónir. Þessi deild hefur þjónustað svæðið frá Norðurlandi og austur á firði. Nú hefur þessari starfsemi verið lokað vegna fjárskorts og mikilvægri stoð kippt undan landsbyggðinni. Afleiðingarnar eiga eftir að verða okkur mjög dýrar og miklu meira en þær 20 milljónir sem um er að tefla.
Það var gert ráð fyrir því í síðustu fjárlögum að Alþingi tryggði fé í þessa starfsemi. Ástæður fyrir því að lokað hefur verið eru óskýrar. Ég ætla ekki að hirða um hver hefur rétt fyrir sér í deilum milli heilbrigðisráðuneytis, Sjúkratrygginga og SÁÁ, en eitt er víst, að vilji Alþingis er skýr. (Forseti hringir.) Það á að tryggja þessa starfsemi, það er búið að tryggja fé í hana og það er ekkert í boði að bíða mikið lengur.