149. löggjafarþing — 75. fundur,  5. mars 2019.

Schengen-samstarfið.

566. mál
[15:07]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Það er full ástæða til að þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir þessa greinargóðu skýrslu um Schengen-samstarfið. Þar er farið nokkuð ítarlega yfir þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í þessu samstarfi og sögu okkar innan þess, sem hófst fyrir réttum 20 árum síðan.

Það kemur glögglega fram í skýrslunni að Schengen-samstarfið er í dag allt annað en það var í upphafi, t.d. hefur þátttökuríkjum fjölgað mikið frá síðustu aldamótum, straumur flóttamanna inn á svæðið hefur á tímabilum verið fordæmalaus og hefur stóraukist frá því sem var, hryðjuverk eru orðin viðvarandi vá innan svæðisins og tengjast oft fólki sem hefur komið inn á svæðið yfir ytri landamærin.

Herra forseti. Það er því ljóst að samstarfið er allt annað og þessi samningur er allt annar en sá sem við ákváðum að taka þátt í í upphafi. Það var forsenda þess að Schengen-ríkin féllu frá landamæraeftirliti á landamærum sínum að þátttökuríkin öll í sameiningu gripu til vandaðra aðgerða til þess að styrkja og efla ytri landamærin svo unnt væri að sporna við þeim hættum sem gætu steðjað að svæðinu í heild. Aðalforsendan var sem sagt að ytri landamæri aðildarríkjanna yrðu treyst og þar væri fylgt samræmdu verklagi.

Á þetta hefur þótt nokkuð skorta, sérstaklega undanfarin ár, við aukinn straum flóttamanna að ytri landamærum og yfir þau. Það mætti einnig nefna þetta atriði sérstaklega meðal nýrra ógna við samstarfið. Það er gert í skýrslunni, þ.e. upptöku tímabundins eftirlit einstakra þjóða á innri landamærum sínum. Það virðist vera óleyst vandamál innan samstarfsins sem getur augljóslega sett það í uppnám, enda afnám landamæraeftirlits á innri landamærum forsenda samstarfsins. Hvort þetta vandamál verði leyst á farsælan hátt virðist ekki vitað á þessari stundu en forsenda fyrir samstarfinu er auðvitað að ytri landamæri Schengen haldi og þjóni þannig svæðinu öllu.

Margt gott hefur leitt af þessu samstarfi og eru kostir þess ítarlega reifaðir í skýrslunni. Þar er nefnt: Auðveld og þægileg för milli landa án landamæraeftirlits, samræmd stefna um útgáfu vegabréfsáritana, samvinna vegna málefna flóttamanna og loks aðgangur að lögreglusamvinnu ríkjanna. En í lokaorðum skýrslunnar er fullyrt að Ísland hefði ekki bolmagn til að halda uppi slíku tvíhliða samstarfi við einstök Evrópuríki. Það er bara fullyrt að Ísland hefði ekki bolmagn til þess.

Herra forseti. Það er einnig ljóst og kemur að nokkru fram í skýrslunni að allt umfang og kostnaður vegna samstarfsins hefur aukist á undanförnum árum og kröfur til þátttökuríkjanna hafa aukist að sama skapi. Það væri í því sambandi afskaplega áhugavert að þessi kostnaður yrði ítarlega greindur og kynntur Alþingi. Hann leynist víða. Til dæmis er í síðustu fjárlögum 837 milljónum varið til að efla landamæravörslu í tilefni af Schengen-úttekt sem fór fram 2017. Leynast slík útgjöld vegna samstarfsins víðar? Ég tel að það væri verðugt verkefni að slík útgjaldagreining færi fram sem tæki til bæði beins og óbeins kostnaðar við Schengen-samstarfið.

Í þessu samhengi vil ég aðeins fjalla nánar um þessa úttekt sem við erum greinilega byrjuð að bregðast við en í skýrslunni er tíundað hvað það hafi verið sem hún leiddi í ljós að bjátaði á við framkvæmd samstarfsins hér. Í henni var helst fundið að framkvæmd Íslendinga á landamæraeftirliti á Keflavíkurflugvelli og gerðar voru alvarlegar athugasemdir við veikleika í stjórnskipulagi málaflokksins í heild. Er það virkilega þannig að við stöndum okkur ekki í þessu samstarfi? Er þetta það alvarlegs eðlis?

Það var talið að mannafla skorti, bæta þyrfti búnað og bæta farþegalistagreiningar. Einnig var talið að þjálfun og menntun starfsmanna uppfyllti ekki lágmarkskröfur. Ég geri ráð fyrir að þessir fjármunir, fjárframlög í síðustu fjárlögum, hafi farið í að leitast við að bæta þessi atriði. Því væri gott að fá að vita hvort þar með sé þessum kröfum í úttektinni fullnægt eða hvort vænta megi aukinna fjárútláta til að koma á móts við þær aðfinnslur.

Það væri ekki úr vegi, herra forseti, að kalla eftir ítarlegri kostnaðargreiningu, eins og ég hef nefnt í minni ræðu, á því hvað það kosti okkur nákvæmlega að vera í þessu samstarfi Schengen-þjóðanna. Jafnframt verði greint hvað það myndi kosta okkur að standa utan við samstarfið og hvaða möguleikar felist í því. Vil ég þar nefna sérstaklega lögreglusamstarfið en í skýrslunni segir að það sé ómögulegt fyrir okkur að standa utan við það samstarf. Það væri vert að vita hvaða möguleika við eigum í því sambandi, t.d. samvinnu við Stóra-Bretland sem staðið hefur utan Schengen alla tíð. Og Írland. Eru ekki einhver tækifæri þar? Einhvern veginn fara þeir að. Einhvern veginn hljóða þeirra samningar við Schengen-ríkin.

Að síðustu vil ég þakka hæstv. ráðherra fyrir afskaplega góða og greinargóða skýrslu.