Schengen-samstarfið.
Herra forseti. Ég þakka kærlega fyrir þessa skýrslu sem mér þykir mjög upplýsandi og greinargóð. Ég er einn af þeim sem eru frekar fylgjandi Schengen-samstarfinu. Ég tel að það hafi nýst Íslandi mjög vel. Ég þekki auðvitað best til löggæsluþáttarins og til SIS-kerfisins og SIS-skrifstofunnar. Ég er almennt á því að fólk eigi að hafa nokkuð frjálsa för yfir landamæri en þótt ég sé á þeirri skoðun og vilji bjóða flesta velkomna þá veit ég að nauðsynlegt er fyrir okkur að hafa gott yfirlit yfir það hverjir dvelja hér á hverjum tíma. Afbrotamenn og hryðjuverkamenn ferðast eins og aðrir og nauðsynlegt fyrir okkur að hafa net upplýsinga þar sem við getum fylgst með því hverjir koma til landsins og jafnframt skráð inn í kerfið og hjálpað þannig öðrum löndum að vita hverjir það eru sem koma til þeirra.
Ísland gegnir mjög mikilvægu hlutverki í Schengen því að oft erum við ytri landamæri Schengen, t.d. þegar kemur flug frá Bandaríkjunum. Þess vegna var ekki gott þegar við fengum á okkur þá gagnrýni að við værum ekki nógu vel þjálfuð á Keflavíkurflugvelli, að starfsfólkið kynni ekki nógu vel á kerfin. Mér skilst að verið sé að bregðast við því. Þetta tengist því sem við vorum að tala um áðan um löggæsluna, að okkur hefur vantað mannskap. Okkur vantar þjálfað fólk.
Ég held að við ættum enga möguleika á því að halda uppi jafn góðri löggæslu og við gerum í dag án þess að nýta slík kerfi, án þess að nýta samstarf við aðrar Evrópuþjóðir og fá styrk frá þeim. Ég er ekki í stjórnmálaflokki sem er mjög Evrópusinnaður en ég er þó hrifinn af Schengen og sé ekki að þetta tvennt þurfi endilega að fara saman.
Eins og ég sagði áðan held að fagna beri allri bættri tækni í þeim málaflokki. Ég held reyndar að kerfi eins og SIS hjálpi þegar hælisleitendur koma til landsins. Það að vera með gott kerfi og góða skráningu flýtir afgreiðslunni og styttir biðtíma fólks, það að við séum í góðum tengslum við önnur lönd. Í stað þess að fólk þurfi að bíða mánuðum saman getur það fengið svör miklu fyrr ef upplýsingar um það eru skráðar í sameiginlegu kerfi. Ég bind t.d. miklar vonir við kerfi sem verið er að þróa, Entry/Exit-kerfið, að það geti hjálpað okkur með þann flóttamannastraum sem hefur verið að koma til Evrópu.
Það er alveg ljóst að lönd hafa komist upp með að loka innri landamærum þótt það sé ekki stefna Schengen. Þó að ég geti sýnt því ákveðinn skilning þykir mér það ekki gott. Mér þykir það slæmt. Ég vildi hafa sem flest landamæri opin og ég held að það fari að styttast í að þau landamæri opni.
Ég átti leið milli Slóveníu og Króatíu í sumar og fékk að prófa þetta Schengen-kerfi þar sem ég gat keyrt alveg frjáls út úr Slóveníu, tíu metra, þar til ég kom að Króatíu. Þar sá ég líka hvernig ytri landamærin virka. Þar voru langar raðir af fólki að reyna að komast inn á Schengen-svæðið í gegnum Slóveníu.
Talað er um í skýrslunni að kannski séum við stundum of smá og náum ekki að uppfylla allt og auðvitað verðum við stundum að sætta okkur við það. En ég held að við megum ekki láta deigan síga, við verðum að gera okkar besta. Ég held að mikilvægt sé að við séum í slíku samstarfi. Við verðum líka að sætta okkur við alheimsvæðinguna. Fólk fer nokkuð hratt á milli landa, með flugi og öðru, þannig að við þurfum að hafa einhver tæki. Ef við tölum um að við séum of smá til að vera gildandi í Schengen þá held ég að við séum allt of smá til að standa utan þess og ætla sjálf að vera með allt þetta eftirlit og gagnabanka.
Þetta er mitt innlegg í umræðuna. Ég hvet til þess að við höldum áfram í Schengen. Ég vil leggja áherslu á hversu mikilvægt það er fyrir landamæravörslu okkar og löggæsluna að vera þar inni. Ég þakka enn og aftur fyrir skýrsluna sem mér fannst, eins og áður sagði, mjög upplýsandi og greinargóð.