Schengen-samstarfið.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir skýrsluna þar sem farið er mjög vel yfir Schengen-samstarfið, þróun þess og stöðu í dag. Eins og fram kemur í skýrslunni hóf Ísland þátttöku í Schengen-samstarfinu þann 25. mars árið 2001, samhliða Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Frá þeim tíma hafa miklar breytingar átt sér stað á fjölda ferðamanna og ferða Íslendinga til og frá landinu, auk mikillar aukningar á komu flóttamanna og hælisleitenda til landsins.
Eins og fram kemur í skýrslunni felst Schengen-samstarfið í grundvallaratriðum í tvennu, með leyfi forseta:
„Annars vegar afnámi persónubundins eftirlits á innri landamærum Schengen-ríkja og hins vegar mótvægisaðgerðum, sem felast einkum í samræmdum reglum um eftirlit á ytri landamærum Schengen-svæðisins og samvinnu lögregluliða meðal þátttökuríkjanna, þar á meðal rekstri Schengen-upplýsingakerfisins, til að tryggja öryggi borgara á Schengen-svæðinu.“
Það er nokkuð ljóst að fámenn eyja eins og Ísland nýtur á margan hátt góðs af því að vera í alþjóðasamstarfi eins og Schengen.
Skýrslan er mjög greinargóð og gefur góða mynd af þeim verkefnum og áskorunum sem felast í samstarfinu. Segja má að kostir og gallar samstarfsins kristallist í sama atriðinu, eins og hefur komið fram í ræðum annarra þingmanna, þ.e. frjálsri för fólks innan svæðisins þar sem almennir ferðamenn njóta þess að sæta ekki landamæraeftirliti við hver og ein landamæri þátttökuríkjanna, en á sama tíma má segja að skipulagðir glæpahópar hafi stærra aðgerðasvæði, geti aukið umsvif sín og stundað afbrot yfir landamæri.
Í Schengen-samstarfinu njótum við góðrar og mikillar samvinnu varðandi löggæslu og öryggismál, auk samræmdra reglna og aðgerða er varða vegabréfsáritanir, meðferð flóttamanna og einstaklinga sem sækja um alþjóðlega vernd. Í skýrslunni er farið vel yfir þær miklu áskoranir sem við höfum staðið frammi fyrir vegna þeirra breytinga sem áður hafa verið nefndar. Auk þess er farið yfir áskoranir úttektar sem gerð var á þátttöku Íslands í Schengen-samstarfinu árið 2017, en slíka úttekt á að gera á fimm ára fresti til að fylgjast með hvernig gangi að fylgja eftir regluverkinu.
Ljóst er samkvæmt skýrslunni að fram undan eru mjög aðkallandi og kostnaðarsöm verkefni sem mætt er með mismunandi hætti og hafist hefur verið handa við að uppfylla.
Þá er mjög áhugaverður kaflinn um Dyflinnarreglugerðina. Núverandi kerfi þykir hvorki sjálfbært né þykir það dreifa ábyrgð á sanngjarnan hátt meðal þátttökuríkja. Fá þátttökuríki bera ábyrgð á flestum umsækjendum um alþjóðlega vernd vegna landfræðilegrar legu. Unnið hefur verið að breytingum frá árinu 2016 með það að leiðarljósi að bæta sanngirni og skilvirkni en erfiðlega hefur gengið að koma því heim og saman.
Í skýrslunni kemur fram að í byrjun febrúar hafi aðildarríkin samþykkt aðgerðir til bráðabirgða sem ætlað er að brúa bil þar til sátt næst um Dublin, án þess að frekar sé getið um hvað átt er við með aðgerðum til bráðabirgða. Talað er um að framhald málsins muni skýrast á næstu vikum. Forvitnilegt verður að vita hvernig það verður.
Þá er lagt til að Ísland endurmeti afstöðu sína varðandi mögulegan aðgang að evrópsku stuðningsskrifstofunni í málefnum er varða alþjóðlega vernd. Það getur verið mikilvægt að hafa aðgang að upplýsingum og þjálfun, eða eins og segir í skýrslunni, með leyfi forseta:
„Sá aðgangur að upplýsingum auk þjálfunar sem stofnunin stendur að geta aukið hvort tveggja gæði og hraða málsmeðferðar umsókna á Íslandi.“
Ég tel mikilvægt að við metum ávinninginn af bættu og hraðara ferli í málsmeðferð á móti fjárhagslegum skuldbindingum í fullgildingu aukaaðildar að samningnum.
Ýmsar áskoranir eru fram undan sem komu í ljós í síðustu úttekt á framkvæmd og beitingu regluverks Schengen á Íslandi. Fram kemur að brugðist hafi verið við með bráðaaðgerðum og stefnumótun til framtíðar.
Ísland hóf þátttöku í Schengen-samstarfinu þann 25. mars árið 2001, fyrir 18 árum. Mikil fjölgun ferðamanna hefur orðið til og frá landinu á þeim tíma, auk mikilla breytinga á komu flóttafólks og hælisleitenda til landsins. Þótt dregið hafi úr ferðamannastraumnum undanfarið, eða hann a.m.k. ekki aukist, er ljóst að verkefnin fram undan eru krefjandi ef við ætlum að uppfylla þær kröfur sem til okkar eru gerðar. Einnig tölum við mikið um á hinu háa Alþingi að fjölga gáttum inn í landið og dreifa ferðamönnum betur um landið, að þeir komi víðar við. Það kallar á enn frekari aðgerðir af hálfu stjórnvalda til að tryggja eftirlit og öryggi við landamæravörslu óháð þróun Schengen-samstarfsins.