Schengen-samstarfið.
Herra forseti. Það er ljúft og skylt að hefja mál sitt á því að þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir skýrslu um Schengen-samstarfið. Skýrslan er yfirgripsmikil og lýsir bæði aðdraganda að því að Ísland varð aðili að Schengen, hvað Schengen er og síðan er farið yfir einstaka efnisþætti með ítarlegum hætti. Fyrir það ber að þakka.
Schengen-samstarfið er gott dæmi um mikilvægt alþjóðasamstarf, mikilvægt Evrópusamstarf, sem við tökum þátt í. Það ætti að vera flestum ljóst að sá flokkur sem ég tilheyri er þeirrar skoðunar að samstarf af þessu tagi sé mjög mikilvægt og skili þjóðinni miklum árangri. Mér finnst það sannast í þeirri ágætu skýrslu sem fjallar um þetta mál hvað það er mikilvægt fyrir Ísland að taka þátt í svona samstarfi, sem leiðir til þess að íslensk yfirvöld geta með miklu betri og skilvirkari hætti en ella tekist á við verkefni sem í eðli sínu eru alþjóðleg, í þessu tilviki evrópsk. Mér fannst það líka koma ágætlega fram í máli hæstv. ráðherra að þátttakan er mikilvæg og það er engan bilbug að finna á ráðherranum gagnvart því að halda þessu samstarfi áfram og sinna því eins vel og hægt er.
Mér fannst líka gaman að heyra að ráðherrann lýsti því ágætlega hvernig Ísland í samfloti við önnur ríki getur haft áhrif á það hvernig regluverkið þróast. Það sýnir manni og færir heim sanninn um að smærri ríki á borð við Ísland, hafi þau fram að færa sannfærandi rök fyrir máli sínu, geta breytt regluverki sem stór og voldugri ríki standa að, í þessu tilviki Evrópusambandið. Er ég þá að vísa til ummælanna um Schengen-upplýsingakerfið sem skammstafað er SIS, en fram kom í máli ráðherra og í skýrslunni að þar náðu nokkur ríki fram mikilvægum breytingum.
Það er með þetta samstarf eins og allt annað að það þarf að leggja til þess ef það á að takast vel. Fram kemur í skýrslunni að á köflum höfum við kannski ekki staðið okkur eins vel og skyldi, en við því er verið að reyna að bregðast, og ég held að við eigum að taka þetta mjög alvarlega vegna þess að þessi samningur er gríðarlega mikilvægur. Ég held að það sé óráð að menn tali af, mér liggur við að segja léttúð (Gripið fram í.) — þakka þér fyrir hv. þingmaður — um gildi þessa samnings.
Fram kom t.d. í máli hv. þm. Karls Gauta Hjaltasonar að hann vildi láta gera úttekt á kostnaði við samninginn. Það er auðvitað allt gott og blessað. Hann vildi líka láta gera greiningu á því hvað það myndi kosta að við reyndum að gera þetta allt saman sjálf. Í máli hans kom þó ekkert fram, a.m.k. ekki í ræðunni sem hann flutti, um hvort reyna ætti að leggja mat á kostina við að vera í samstarfinu og þá kostina og gallana við að taka ekki þátt í því. Það er nú einu sinni þannig að það verður ekki allt mælt á endanum í krónum og aurum.
Mig langar til að vitna til orða í orð Stefáns Eiríkssonar, sem talaði á fundi hjá Viðreisn fyrir u.þ.b. fimm mánuðum síðan. Stefán Eiríksson starfaði áður í dómsmálaráðuneytinu og var þar á undan lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu og kom mjög að samningum Íslands um Schengen á sínum tíma. Hann hefur síðan þekkt það samstarf á eigin skinni. Með leyfi forseta, ætla ég að fá að vitna til hans:
„Ég held að styrkurinn í þessu samstarfi fyrir Ísland sé í þessum hliðarráðstöfunum öllum,“ — þ.e. því sem fylgir Schengen-samningnum — „þessari lögreglusamvinnu sem tengist þessu sem í rauninni á við um allt alþjóðlegt samstarf. Við verðum að mínu mati sterkari þegar við erum með aðild að því og tökum þátt í að þróa það og deila og miðla upplýsingum á hvaða sviði sem það er heldur en að standa þar fyrir utan. Í mínum huga á það við með augljósum hætti um lögreglusamvinnu, samvinnu um réttaraðstoð í sakamálum, framsal sakamanna og síðan þetta samstarf sem er í málefnum innflytjenda og hælisleitenda. Ég held að ef við hefðum ekki farið í Schengen-samstarfið hefðum við að mörgu leyti einangrast, og ekki bara í Evrópusamstarfi, heldur líka í þessu norræna samstarfi og það var svona hið sameiginlega mat á þessum tíma.“
Ég held að þarna hafi Stefán hitt naglann á höfuðið, að samstarf af þessu tagi sé í sjálfu sér spurning um hvort við viljum og getum verið fullgildir þátttakendur í alvörualþjóðasamstarfi. Niðurstaða skýrslunnar og Stefáns og mín og Viðreisnar er sú að það sé auðvitað hárrétt.
Það er þess vegna miður að þeir sem eru andvígir alþjóðlegu samstarfi, í það minnsta hinu evrópska, megi ekki heyra minnst á aðild að Evrópusambandinu. Það er oft þannig, þótt það gildi að sjálfsögðu ekki um alla. Úr þeirra röðum koma upp raddir sem reyna hvað þær mega til að gera Schengen-samstarfið tortryggilegt og finna því flest til foráttu, kalla það byrði og að það sé að sliga samfélagið að rísa undir þeim skuldbindingum sem því fylgja.
Ég held að þegar menn ræða um Schengen í þessu samhengi sé þetta svolítið eins og í gamla daga, að þegar menn þurftu að skamma Kína ræddu þeir gjarnan um Albaníu. Ég held að menn séu að reyna að finna sér einhverja leið til þess að gera allt evrópskt samstarf tortryggilegt með því að beina sjónum sínum að Schengen-samstarfinu og telja það dýrt. Það leiði til þess að hingað flæði inn glæpamenn, hingað flæði inn flóttafólk, og ímynda sér og fullyrða að þetta getum við allt ráðið við sjálf, það sé ekki nokkur einasti vandi. Það eigi bara að taka upp vegabréfaeftirlit á landamærunum og þar með sé málið úr sögunni. Eyðum ekki peningum í Schengen-samstarfið og hættum allri þeirri gríðarlegu samvinnu sem felst í því samstarfi, við getum bara gert þetta sjálf. Það er viðhorf sem ég held að sé hættulegt í nútímanum. Ég held að það sé mjög hættulegt vegna þess að allar staðreyndir máls teikna til þess að aukin alþjóðasamvinna, aukin þátttaka okkar í evrópskri samvinnu, muni færa okkur mikla kosti en fáa galla.
Að ímynda sér að maður geti staðið einn í heiminum og ráðið sér sjálfur er — ég veit ekki hvað ég á eiginlega að kalla það — það er einhver ímyndunarveiki sem heltekur marga. Þeir virðast horfa fram hjá því hvernig gangverk alþjóðasamfélagsins, alþjóðaviðskipta, samvinna á sviði mannréttinda, samvinna um frið, um öryggi, virkar. Þegar maður stendur einn þarf maður einmitt að sitja og standa eins og aðrir segja manni að sitja og standa.
Þannig að mín niðurstaða er þessi: Við eigum að verja Schengen-samstarfið. Við eigum að auka þátttökuna í því. Við eigum að gera allt sem við getum til að standa okkur vel í þessu samstarfi sem er okkur gríðarlega mikilvægt, um leið og það er gríðarlega mikilvægt fyrir samstarfsþjóðir okkar í þessu samstarfi. Ég held að við eigum ekki að nálgast viðfangsefnið út frá því að það snúist eingöngu um krónur og aura. Það snýst um það að við sinnum og leggjum okkar af mörkum í þessu mikilvæga evrópska samstarfi.