149. löggjafarþing — 75. fundur,  5. mars 2019.

Schengen-samstarfið.

566. mál
[16:38]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Við ræðum skýrslu hæstv. dómsmálaráðherra um Schengen-samstarfið. Ég vil eins og aðrir hv. þingmenn sem hafa tekið þátt í umræðunni þakka þessa skýrslu og umræðuna, sem er að sjálfsögðu mikilvæg. Mér finnst mikilvægt, eins og gert er ágætlega í skýrslunni og í inngangi hennar — og mér finnst það eiga við um flest svið og hvað sem við ræðum hér — að minna okkur á af hverju við erum að taka þátt t.d. í þessu samstarfi og hvernig það kemur til og kannski ekki síður um hvað það fjallar.

Við höfum tekið þátt í þessu samstarfi frá 25. mars árið 2001, en þá komum við Íslendingar inn í það samhliða þátttöku Danmerkur, Finnlands, Svíþjóðar og Noregs. Það þótti á sínum tíma þjóna best hagsmunum norræna vegabréfasamstarfsins að öll Norðurlöndin myndu sækja um aðildina að Schengen-svæðinu samhliða. En Finnland, Svíþjóð og Danmörk, þá þegar aðildarríki Evrópusambandsins, voru fyrri til að sækja um með þeim fyrirvara þó að öll Norðurlöndin tækju þátt.

Hugmyndafræðina um frjálsa för má rekja aftur til Rómarsáttmálans 1957 þegar norræna vegabréfasamstarfið varð einnig til. Vegna sögulegra og landfræðilegra sjónarmiða var óhugsandi annað en að Noregur tæki þátt og þá hefðum við staðið ein þjóða utan samstarfsins. Um þetta má lesa í umfjöllun um málið þegar við tókum það upp í þingsályktunartillögu, ef ég man rétt. Þetta kemur jafnframt fram í ágætri skýrslu um kosti og galla Schengen-samstarfsins sem unnin var af þáverandi innanríkisráðherra, Ögmundi Jónassyni, og að beiðni hæstv. fjármálaráðherra í dag, Bjarna Benediktssonar. Þá var það álit sérfræðinga, þriggja lagaprófessora, þeirra Stefáns Más Stefánssonar, Davíðs Þórs Björgvinssonar og Viðars Más Matthíassonar, að Ísland eitt og sér, þ.e. ef við hefðum staðið ein og sér hefði það staðið alþjóðlegu samstarfi á sviði lögreglu og dómsmála á Norðurlöndum og í Evrópu fyrir þrifum, og raunar mun sterkar til orða tekið stefnt slíku samstarfi í voða og stöðu okkar á sviði lögreglu og dómsmála á alþjóðlegum vettvangi. Ástæðurnar fyrir aðildarumsókn voru því skiljanlegar þegar þessi saga er dregin fram.

Schengen-samkomulagið var undirritað fyrst 1985 milli Þýskalands, Frakklands og Benelux-landanna þriggja. Ísland gerist síðan aðili 2001, sem má alveg rekja til beinnar afleiðingar af EES-samningnum og hugmyndafræði fjórfrelsisins, en samkomulagið um Schengen var fært inn í regluverk Evrópusambandsins, sem kemur fram í skýrslu árið 1999 með Amsterdam-sáttmálanum, og Schengen-samstarfið fellt þar undir lög, reglur og stofnanir sambandsins.

Síðan hafa um tveir áratugir liðið. Ýmislegt hefur verið rætt og ritað og ekki síst gagnrýnt. Og alltaf undirliggjandi, eðlilega má segja, hræðsla um öryggi almennra borgara vegna landamæraleysis, afnáms innra landamæraeftirlits á svæðinu, þar sem eftirlitið var fært á ytri landamæri, og afnáms persónubundins eftirlits á milli landa Evrópusambandsins til að greiða fyrir frjálsri för.

Það hefur speglast ágætlega í umræðunni að við erum enn á svipuðum stað að mörgu leyti varðandi rökræðuna um Schengen-samstarfið, en þannig hefur í sjálfu sér takmarkað vegabréfaeftirlit með þegnum þeirra þjóða sem eiga aðild að samkomulaginu ávallt sætt nokkurri gagnrýni. Sífellt aukin hryðjuverkaógn hefur ýtt undir þá gagnrýni. Þróunin síðustu ár hefur leitt til þess að raddir um að samstarfið væri úr sér gengið og í raun sprungið urðu háværari fyrir nokkrum árum og hæstar árið 2015. Og síðan þá þegar flóttamannastraumurinn varð hvað mestur frá suðri til Norður-Evrópu og í raun og veru fyrst um sinn, þó að gengið hafi ágætlega að takast á við vandann, þá fékkst um tíma ekki neitt við ráðið. Austurríki, Danmörk, Svíþjóð, Þýskaland og Frakkland tóku þá upp eftirlit á sínum innri landamærum af öryggisástæðum.

Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir og fleiri hafa skilið hér eftir spurningu til hæstv. ráðherra um hver staðan sé á því, að það hafi verið framlengt. Þeim áskorunum sem fylgdu því neyðarástandi sem þá var uppi hefur verið mætt með ýmsum ráðstöfunum og breytingum á regluverkinu og núgildandi löggjöf með sameiginlega upplýsingakerfinu, SIS-kerfinu, Schengen Information System, skráningarkerfum o.s.frv. Þær upplýsingar sem við höfum fengið í okkar starfi og frá lögreglunni beint eru að þetta sé afar mikilvægt upplýsingakerfi og afar mikilvægt öllu starfi lögreglunnar hér og á alþjóðavettvangi og aðgangur að þeim kerfum og samstarf við þjóðir á þeim vettvangi.

Þá kemur fram í skýrslunni að málsmeðferð Schengen-gerða hefur styrkst, eins og hefur svo sem verið, og hæstv. ráðherra fór mjög vel yfir að væri mikilvægt. Samstarf frá upphafi fólst einkum í tveimur grundvallaratriðum í afnámi persónubundins eftirlits innan svæðisins, á svokölluðum innri landamærum, og svo hins vegar þeim mótvægisaðgerðum sem felast í samvinnu lögregluyfirvalda á svæðinu, m.a. með rekstri sameiginlegra gagnagrunna, upplýsingakerfis, hafa samræmt rafrænt upplýsingakerfi þar sem upplýsingar eru skráðar og svo sú upplýsingaskrifstofa sem hverju ríki í samstarfinu er áskilið að reka, og við gerum það sömuleiðis, SIRENE, og rekin er innan alþjóðadeildar lögreglunnar. Slíkar aðgerðir eru mikilvægar í þeim tilgangi að tryggja öryggi borgaranna, en sú samvinna hefur sífellt aukist og í auknum mæli gengur það út á að sporna við skipulagðri glæpastarfsemi.

Þær mótvægisaðgerðir sem talað er um í skýrslunni fela í sér að auka samvinnu um landamæraeftirlit á svokölluðum ytri landamærum. Til að mynda í okkar tilviki ná þau landamæri til Rússlands og í suðri til Tyrklands og Norður-Afríku, sem liggja að landamærum Grikklands og Ítalíu.

Í umræðunni hefur þó nokkuð verið talað um vegabréfsáritanir og vegabréfaeftirlit. Samvinna um þann þátt er mjög mikilvæg. Einnig réttaraðstoð í sakamálum, ekki síst er samvinna mikilvæg um aðgerðir gegn skipulagðri glæpastarfsemi og í samstarfi lögregluliða landa á milli gegn slíkri starfsemi, eins og t.d. í fíkniefnamálum.

Í skýrslunni kemur fram að með auknu umfangi hefur margt breyst mjög mikið og hratt núna á allra síðustu árum og margt er til bóta, til að mynda er rekstrarsamhæfing upplýsingakerfa til einföldunar og aukinnar skilvirkni og aðgengi löggæsluyfirvalda að upplýsingum. Nauðsynlegar eru breytingar á Dyflinnarreglugerðinni og Eurodac fingrafaragrunninum.

Mér finnst skýrslan í raun og veru gera því kannski hvað best skil, þ.e. öllu því sem er verið að vinna að. Úrbætur hafa gerst mjög hratt núna, bara þessi síðustu fjögur ár, getum við sagt. Það hefur aðeins komið fram í umræðunni að ekki eru allir sáttir við þetta samstarf. Ég verð að segja að mér finnst, eftir því sem tímar hafa liðið, það blasa við að þetta er mikilvægt samstarf og hefur nýst okkur vel. Farið er mjög vel yfir það í skýrslunni, þ.e. í þeirri úttekt sem var framkvæmd, sem er tæki til að kanna hvernig þetta gengur hjá hverju landi fyrir sig. Það er ágætlega greint frá því á bls. 7 í úttektinni, hvernig þetta kemur út. Og svo situr aðgerðalisti eftir sem við þurfum að bæta úr. Það eru sérstaklega alvarlegir annmarkar á framkvæmdinni á Keflavíkurflugvelli og svo í stjórnskipulaginu í heild sinni. En verið er að setja aukið fjármagn til málaflokksins og var gert núna í fjárlögum fyrir árið 2019. Ég á því von á að við sjáum úrbætur á því sviði og er sannfærður um að hæstv. ráðherra fylgi því vel eftir.

Virðulegi forseti. Ég tel mikilvægt að við fylgjum þessum aðgerðalista vel eftir, og eins og ég sagði er ég hlynntur þessu samstarfi. Farið er ágætlega yfir það hver ávinningurinn af því er. Frá upphafi þátttöku Íslands í Schengen er einn helsti ávinningur okkar aðgangur að lögreglusamvinnusamstarfinu sem Ísland hefði ekki bolmagn til að halda uppi (Forseti hringir.) tvíhliða við einstök Evrópuríki.