Schengen-samstarfið.
Hæstv. forseti. Ég ætla líkt og aðrir, að þakka hæstv. ráðherra fyrir skýrsluna. Umræðan um samstarfið er oft á villigötum og þetta er góður þáttur í því að halda umræðunni málefnalegri og á réttum forsendum til að meta ávinninginn sem er af þessu samstarfi og sjá hvar við getum gert betur. Líkt og ráðherrann sagði heldur þessi skýrsla utan um ólíka þætti samstarfsins.
Farið hefur verið inn á margt hér. Þar sem tími minn er stuttur ætla ég aðeins fjalla um þriðja liðinn í kaflanum um mótvægisaðgerðir í skýrslunni, um að fylgja samræmdri stefnu við útgáfu vegabréfsáritana. Það er mikill ávinningur fólginn í samræmdri stefnu um útgáfu vegabréfsáritana sem gerir íslenskri stjórnsýslu kleift að njóta fyrirsvars annarra Schengen-ríkja við útgáfu áritana inn á svæðið, sem greiðir fyrir straumi ferðamanna til Íslands.
Síðan er farið inn á fjölmörg atriði sem hér hefur verið fjallað um. Það er líka ánægjulegt að hæstv. dómsmálaráðherra hefur lagt áherslu á mikilvægi lögreglusamvinnunnar innan Evrópu þegar kemur t.d. að netrannsóknum, og lýst yfir áhuga á að koma á starfsmannaskiptum á þessu tiltekna sviði innan lögreglunnar. Eins og í öllu alþjóðasamstarfi gefur þessi umræða og skýrsla okkur betri mynd af stöðu okkar. Við höfum komið að mótun gerðanna í Schengen frá upphafi.
Það eru mikil tækifæri fólgin í því að koma álitamálum okkar að. Það sést á ýmsu að við höfum gætt hagsmuna okkar, samanber breytingar á SIS-kerfinu þar sem við vorum að reyna að minnka kostnað og bregðast við í þeirri stöðu sem upp er komin. Það er alveg ljóst að Ísland hefur staðið sig mjög vel við að bæta úr þeim annmörkum sem úttektirnar benda á og eins varðandi landamæramálin, að við höfum brugðist við og gert endurbætur. Annars fagna ég þessari umræðu og þakka ráðherranum fyrir góða skýrslu.