149. löggjafarþing — 75. fundur,  5. mars 2019.

breyting á sveitarstjórnarlögum.

90. mál
[18:15]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingu á sveitarstjórnarlögum er varðar eingöngu fjölda fulltrúa í sveitarstjórn. Fyrsti flutningsmaður málsins er hv. þm. Jón Gunnarsson. Hann er ekki staddur hér í húsi í dag þannig að ég tek að mér að mæla fyrir málinu, en ásamt Jóni Gunnarssyni eru það hv. þingmenn Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Bergþór Ólason, Bryndís Haraldsdóttir, Karl Gauti Hjaltason, Njáll Trausti Friðbertsson, Ólafur Ísleifsson, Óli Björn Kárason og Vilhjálmur Árnason sem flytja þetta frumvarp.

Frumvarpið gengur út á það að breyta 11. gr. sveitarstjórnarlaga þannig að 1. mgr. orðist svo:

„Í sveitarstjórn skal fjöldi fulltrúa standa á oddatölu. Fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn skal ákveðinn í samþykkt skv. 9. gr. Skulu aðalmenn aldrei vera færri en fimm. Þar sem íbúar sveitarfélags eru færri en 2.000 skulu aðalmenn ekki vera fleiri en sjö.“

Auk þess er lagt til að orðin „eða fjölga“ og orðin „hærri eða“ í 1. málslið 2. mgr. falli brott.

Frumvarp þetta hefur áður verið lagt fram nokkrum sinnum í aðeins breyttri mynd. Frumvarpið með þessari greinargerð var líka lagt fram á 148. löggjafarþingi.

Sveitarfélög eru stjórnvöld og falla þar með í flokk handhafa framkvæmdarvalds samkvæmt 2. gr. stjórnarskrárinnar. Sveitarfélögin eru því hluti af stjórnsýslukerfinu og ber að fylgja almennum reglum sem gilda um starfsemi stjórnvalda og framkvæmd stjórnsýslu. Samkvæmt 1. mgr. 78. gr. stjórnarskrárinnar skulu sveitarfélög ráða sjálf málefnum sínum eftir því sem lög ákveða. Með þessu orðalagi, að þau ráði sjálf málefnum sínum, er vísað til sjálfstjórnar sveitarfélaga. Í sjálfstjórn sveitarfélaga felst m.a. að íbúar sveitarfélags hafi lýðræðislegan rétt á að kjósa stjórn sveitarfélagsins í almennum kosningum.

Kveðið er á um fjölda sveitarstjórnarmanna í 1. mgr. 11. gr. sveitarstjórnarlaga. Gildandi lagaákvæði hefur þannig áhrif á fjölda fulltrúa í sveitarstjórnum. Mikilvægt er að standa vörð um sjálfstjórnarrétt sveitarfélaga og tryggja að sú lýðræðislega hugsun sem býr að baki sveitarstjórnarstiginu og reglum um kosningar til sveitarstjórnar, að sveitarstjórnarfulltrúar séu fulltrúar íbúa sveitarfélagsins, endurspegli á virkan hátt vilja íbúanna.

Hugmyndafræðilegur grundvöllur 1. mgr. 78. gr. stjórnarskrárinnar er að tryggja rétt íbúa á staðbundnum svæðum til að ráða sjálfir tilteknum málefnum án afskipta ríkisvaldsins. Því telja flutningsmenn frumvarps þessa rétt að sveitarfélögin geti sjálf ráðið fjölda aðalmanna í sveitarstjórn. Hafa ber eftirfarandi í huga eins og fram kom í athugasemdum við 2. mgr. 11. gr. í greinargerð frumvarpsins sem varð að gildandi sveitarstjórnarlögum, með leyfi forseta:

„Mikilvægt er þó einnig að hafa í huga að það stjórnskipulag sem frumvarpið gerir ráð fyrir að gildi um starfsemi sveitarfélaga gerir ekki ráð fyrir mjög stórum sveitarstjórnum enda byggt á því að sveitarstjórnin sjálf taki allar meiri háttar ákvarðanir um rekstur og stjórnsýslu sveitarfélagsins og beri á þeim ábyrgð.“

Verði frumvarp þetta að lögum verður sveitarstjórnum í sjálfsvald sett að ákveða fjölda aðalmanna í sveitarstjórn í samþykktum sínum innan þeirra einu marka að fulltrúarnir verði aldrei færri en fimm og ekki fleiri en sjö þar sem íbúar sveitarfélags eru færri en 2.000. Breytingarnar sem lagðar eru til á 2. mgr. 11. gr. laganna skýrast af því að verði frumvarpið að lögum verður sveitarfélagi aldrei skylt að fjölga fulltrúum í sveitarstjórn þótt íbúafjöldi taki breytingum.

Þá má nefna að sveitarfélögin hafa sjálfstæða tekjustofna og fjárveitingavald innan ramma laga, samanber 2. mgr. 78. gr. stjórnarskrárinnar. Tekjur sveitarfélaga og svigrúm til að nýta þær eru lykilþættir þegar litið er til þess hvað sveitarfélögin geta tekið sér fyrir hendur sjálf, þ.e. að eigin frumkvæði eins og t.d. að ákveða fjölda aðalmanna í sveitarstjórn. Hafa ber hugfast að frumvarpi þessu er ekki ætlað að hafa áhrif á hvort sveitarfélög fjölgi fulltrúum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar eður ei. — Þessi athugasemd stendur væntanlega hér í greinargerðinni vegna þess að frumvarpið var lagt fram fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar.

Fjárhagsleg áhrif ákvæða frumvarpsins á ríkissjóð eru engin. Það kann að sjálfsögðu að vera að frumvarpið geti haft einhver áhrif á fjárhagsáætlanir sveitarfélaganna, en þeim er það í sjálfsvald sett.

Virðulegur forseti. Ég hef hér farið yfir frumvarpið og greinargerðina með því. Mig langar að bæta við það sem ég hef þegar sagt að það skapaðist mjög mikil umræða um það á sínum tíma þegar sveitarstjórnarlögum var breytt og sett voru inn ákvæði sem fólu helst í sér ákveðnar kvaðir á Reykjavíkurborg, út frá stærð Reykjavíkurborgar, að hún þyrfti að fjölga fulltrúum verulega. Ég veit að sitt sýnist hverjum í þessum efnum. Það sem við þingmenn sem flytjum þetta frumvarp erum í rauninni fyrst og fremst að leggja áherslu á er að þetta verði ákvörðun sveitarfélaganna sjálfra. Það sé ekki tekin ákvörðun um það hér á þingi hvað hvert og eitt sveitarfélag eigi að vera með marga fulltrúa út frá fjölda íbúa.

Mér finnst líka mikilvægt í þessum efnum að horfa á það að sveitarstjórnir eru fjölskipað stjórnvald og að mörgu leyti eru störf í sveitarstjórnum og nefndum sem fylgja sveitarstjórnarstiginu kannski lýðræðislegri en gengur og gerist t.d. hér á þingi. Nú hef ég margra ára reynslu af því að starfa á vettvangi sveitarstjórnar og það er stór hluti af íbúum sem kemur í rauninni að stjórn sveitarfélagsins í gegnum nefndakerfi sveitarfélaganna. Ég hef ekki það á tilfinningunni að það skorti eitthvað upp á að lýðræðisleg og fjölbreytt sjónarmið fái að heyrast um hina ýmsu málaflokka sem sveitarfélögin bera ábyrgð á. Ég tel þvert á móti að núverandi fyrirkomulag sé einmitt mjög vel til þess fallið að raddir sem flestra heyrist, auk þess sem fleiri og fleiri sveitarfélög eru auðvitað að taka upp aukið beint lýðræði, bæði með kosningum og íbúaþingum og öðrum leiðum til að kalla fram sjónarmið íbúa í ákveðnum málum.

Ég hef sjálf orðið vitni að því og séð það gerast að störf sveitarstjórna batna ekki við það að það verði fleiri í sveitarstjórn, ég bara leyfi mér að fullyrða það. Þvert á móti verða fundirnir oft þunglamalegri, meira uppsettir og að mínu mati lítt til þess fallnir að bæta rekstur eða gæði þeirra ákvarðana sem teknar eru innan sveitarstjórna. Við aðhyllumst það að sveitarfélögin fái sjálf að ákveða hversu marga fulltrúa þau kjósi að hafa í sínum sveitarstjórnum en þó auðvitað með þeim mörkum að þeir skuli aldrei vera færri en fimm, það sé þá sá fjöldi sem við teljum að tryggi að lýðræðisleg sjónarmið fái heyrst í sveitarstjórnum, og ekki fleiri en sjö þegar sveitarfélög eru með færri en 2.000 íbúa.

Ég held ég láti þessu lokið enda er þetta einfalt frumvarp sem skýrir sig mjög vel sjálft.