149. löggjafarþing — 75. fundur,  5. mars 2019.

breyting á sveitarstjórnarlögum.

90. mál
[18:25]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt að með frumvarpinu höldum við okkur við að einhver rammi sé utan um fjölda fulltrúa. Auðvitað er þá hægt að færa rök fyrir því að sveitarfélögunum sjálfum sé ekki alveg frjálst að ákveða fjölda fulltrúa en við erum fyrst og fremst að setja gólf við fimm fulltrúa. Jú, við setjum þak þegar sveitarfélögin hafa ekki fleiri en 2.000 íbúa, en sveitarfélögin eiga að ákveða sjálf. Það er lágmarksfjöldi í sveitarstjórnum, fimm, þannig að hvert og eitt sveitarfélag getur ákveðið að hafa mun fleiri fulltrúa og þá farið eftir stærð sveitarfélagsins, hvort þau telji ástæðu til þess að þeir séu sjö, níu, ellefu, þrettán eða hvað það er.

Með gildandi sveitarstjórnarlögum getur það vel orðið að íbúakosningu. Það er vel hægt að setja þannig fram að ef ákveðinn fjöldi íbúa í samræmi við sveitarstjórnarlögin óskar eftir því að breyta fjölda í sveitarstjórn frá því sem er, verði frumvarpið að lögum, sé ekkert mál að setja það í íbúakosningu.

Ég kynnti mér ekki sérstaklega breytingartillöguna sem hv. þingmaður lagði fram við frumvarpið á sínum tíma. En hugmyndafræði okkar gengur út á að víkka mörkin eða rammann þannig að ákvörðun sé sem mest sveitarfélaganna.

Ég er ekki sammála hv. þingmanni um að lýðræðislegur fjölbreytileiki fáist fyrst og fremst með fleiri fulltrúum í sveitarstjórn. Ég held að til séu svo mörg önnur tæki og tól sem sveitarstjórnin getur notað til að fá sjónarmið íbúa fram og til að vera lýðræðisleg í ákvarðanatöku sinni. Það hvort bæjarfulltrúar séu sjö, níu eða þrettán held ég ekki að sé aðalsjónarmiðið þegar kemur að því að taka lýðræðislegar ákvarðanir og því að fjölbreytnin sé lýðræðisleg, auk þess sem nefndakerfi tryggir aðkomu margra að ákvörðun sveitarstjórna.