breyting á sveitarstjórnarlögum.
Virðulegur forseti. Helsti gallinn sem ég sé við þetta er að það er hvati fyrir þá sem eru við völd, og jafnvel fyrir þá sem eru ekki við völd af kjörnum fulltrúum, til þess að viðhalda eigin aðstöðumun. Það bendir allt til þess að ef við fjölgum fulltrúum komist fulltrúar minnihlutaskoðana með fulltrúa inn á þennan vettvang. Það gæti því verið hvati til þess hjá ráðandi öflum að hafa sem fæsta kjörna fulltrúa, til að þurfa ekki að glíma við aðrar raddir en þær sem eru þægilegastar.
Þess vegna sé ég nauðsyn á því að tryggja stighækkandi lágmarksfjölda fulltrúa eftir því sem íbúafjöldi eykst og bendi aftur á að það þarf ekki endilega að vera línulega hækkun. Miðað er við fimm fulltrúa þar sem eru 2.000 íbúar, þá eru um 400 íbúar á bak við hvern fulltrúa sem getur farið upp í 2.000 á bak við hvern fulltrúa í stærri sveitarfélögum. Það er ákveðinn halli þar. Við glímum einnig við slíkan halla á þingi, þar er ákveðinn atkvæðavægismunur sem er ekki endilega sanngjarn en hann er ekki endilega ósanngjarn á hverju sveitarstjórnarstigi fyrir sig. Þá getur sveitarstjórnarstigið líka, alla vega með breytingartillögu okkar Pírata, ákveðið að minnka muninn þannig að rödd fleiri minni hópa heyrist meðal fulltrúa og ekki bara í gegnum nefndastarfið.
Það er alveg tvímælalaust vandamál þegar raddir og eyru þeirra sem eru við völd eru (Forseti hringir.) fábrotin. Þá heyrir fólk oft ekki það sem minni hlutarnir segja