149. löggjafarþing — 75. fundur,  5. mars 2019.

breyting á sveitarstjórnarlögum.

90. mál
[18:30]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það eru fyrst og fremst þau sjónarmið sem voru ráðandi þegar breytingin var gerð á gildandi sveitarstjórnarlögum um takmörkunina. Ég hygg að Reykjavíkurborg sé með um 90.000 íbúa. (Gripið fram í: 120.) Við erum með 120.000 íbúa. (Gripið fram í: Mínus/plús …) Reykjavíkurborg á þá samkvæmt lögunum að hafa 23–31 borgarfulltrúa. Það er hálft Alþingi Íslendinga. Mér finnst það mjög skakkt en það breytir því ekki að ef íbúar Reykjavíkurborgar vilja hafa slíkan fjölda borgarfulltrúa er það sjálfsagt mál og ekkert að því. Mér finnst mikil fegurð í því fólgin í sveitarstjórnarlögum að um 20% kosningarbærra manna geti óskað eftir íbúakosningu. Þá er mjög einfalt að kjósa um slíkt.

Er það hvati fyrir þá sem eru við völd að fjölga ekki fulltrúum eða fækka ef svo bæri undir? Auðvitað er það eitt af því sem hægt er að hafa áhyggjur af en þá er einhver öryggisventill í því að hægt sé að kalla fram íbúakosningu. Fyrst og fremst held ég að þetta snúist um gildi þess að vera sveitarstjórnarfulltrúi og hversu mikinn tíma fólk getur lagt í starf sitt og hvernig það skiptir með sér verkum. Það er umræða sem þarf líka að taka.

Þá kem ég inn á launakjör bæjarfulltrúa. Ég er sjálf á þeirri skoðun að betra sé fyrir sveitarfélag að hafa heldur færri fulltrúa sem geta gefið meira af sér og varið meiri tíma í störfum sínum en að hafa stóran bekk af fulltrúum sem hlaupa í þetta með öðrum störfum og hafa mjög takmarkaðan tíma til að setja sig inn í málin sem eru könnu sveitarfélaga.

Við skulum átta okkur á því að við höfum fært mjög mörg mál yfir til sveitarfélaga þannig að þau sinna mun (Forseti hringir.) stærri og veigameiri verkefnum en áður og þeim mun meiri ástæða fyrir sveitarstjórnarfulltrúa að hafa tækifæri til að setja sig vel inn í málin. Ég tel að það skipti meira máli en fjöldi fulltrúa.