149. löggjafarþing — 75. fundur,  5. mars 2019.

breyting á sveitarstjórnarlögum.

90. mál
[18:35]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. Það er ljóst að við erum ekki sammála, það liggur í augum uppi. En ég er sammála því og tel það reyndar vera svo að á sveitarstjórnarstiginu sé það í rauninni lýðræðislegra og fleiri raddir sem komi að málum.

Nei, ég get alveg sagt það fyrir mitt leyti að ég teldi ekki skynsamlegt að jafn stórt sveitarfélag og Reykjavíkurborg væri eingöngu með fimm fulltrúa og ég hygg margir séu á þeirri skoðun.

En þegar hv. þingmaður ræðir aftur á móti um nágrannasveitarfélögin — við skulum átta okkur á því í þessari umræðu að Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið á landinu þar sem borgarfulltrúar eru í fullu starfi við að vera borgarfulltrúar. Alls staðar annars staðar er litið á þetta sem hlutastarf, þ.e. allflestir sem þeim störfum sinna eru jafnframt í fullu starfi annars staðar.

Ég sé ekki að það komi lýðræðislegri eða betri niðurstaða út úr því að hafa fleiri fulltrúa sem eru hlaupandi í þessi verkefni og hafa takmarkaðan tíma til að sinna þeim, heldur en að hafa þá þó frekar færri og hafa tök á að greiða meira fyrir það, gera ráð fyrir að þetta sé stærra starfshlutfall, því að það að vera bæjarfulltrúi er mjög viðamikið starf. Það þarf að setja sig inn í ansi marga hluti, ég þekki það og veit að hv. þingmaður þekkir það líka mjög vel. Ég var reyndar í þeirri forréttindastöðu að geta sinnt því alfarið og lærði þar af leiðandi mjög mikið og lagði mig örugglega fram eins og um 100% starf væri að ræða og oft og tíðum mun meira.

Ég held einfaldlega að það sé betra og sterkara fyrirkomulag fyrir sveitarstjórnir sem eru að taka æ fleiri verkefni að sér. Þetta er stjórnsýsla. Það eru svo mikilvægar ákvarðanir teknar á vettvangi sveitarstjórna. (Forseti hringir.) Oft og tíðum held ég, því miður, að fulltrúarnir átti sig ekki á stjórnsýslulögum (Forseti hringir.) og mikilvægi ákvarðana sinna, á alls konar lagabrestum sem upp kunna að koma ef eitthvað fer úrskeiðis.