149. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2019.

störf þingsins.

[15:01]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Í síðustu viku samþykktum við lög um frekari losun fjármagnshafta, aflandskrónur, og gerðum breytingu varðandi innflæðishöftin. Seðlabankinn hefur núna stigið á grundvelli þessara laga, í kjölfar þeirra, mikilvægt skref, heilbrigt skref og afnumið bindiskylduna. Hún er komin niður í 0. Fjárfestingar erlendra aðila í innlendum skuldabréfum verða þá með eðlilegum hætti. Við höfum fengið að upplifa það í kjölfar ágæts hagvaxtar, lágrar verðbólgu, að vextir eru í sögulegu lágmarki. Að öðru óbreyttu og takist okkur að sigla í gegnum kjarasamningana þannig að þeir verði með innstæðu má ætla að með t.d. afnámi innflæðishaftanna sé hægt að gera sér vonir um að vextir muni lækka enn frekar til framtíðar.

Það að vextir lækki er einhver mesta kjarabót sem íslensku launafólki stendur til boða líkt og Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur Viðskiptaráðs bendir ágætlega á í góðri grein sem birtist í dag í Fréttablaðinu. Hann bendir á að 1% lækkun á vöxtum muni skila fjölskyldu með 30 millj. kr. íbúðalán u.þ.b. 25.000 kr. lægri fjármagnskostnaði á mánuði. 1% niður með vextina skilar 25.000 kr. til þessarar fjölskyldu í hverjum einasta mánuði. Það er til mikils að vinna að tryggja að áfram verði stöðugleiki, að við fáum áfram að sjá (Forseti hringir.) kaupmátt ráðstöfunartekna aukast og að hér verði stöðugt verðlag og forsenda fyrir frekari vaxtalækkun verði þar með sköpuð.