störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég ætla að ræða ríkisfjármálaáætlun í samhengi við starfsáætlun þingsins og fyrirkomulag sem við gætum haft á umfjöllun nefnda um málið. Áætlað er að hæstv. fjármálaráðherra muni, samkvæmt fyrirliggjandi áætlun, mæla fyrir fjármálaáætlun 26. þessa mánaðar. Ég legg á það áherslu að mikilvægt er að sú áætlun standist og leita fulltingis hæstv. forseta í þeim efnum. Starfsáætlun þingsins nær til 5. júní. Inn í þann tíma kemur páskaleyfi, u.þ.b. þegar umsagnartími er að klárast. Þó að leyfið muni auðvitað nýtast til þess að fara yfir umsagnir þarf, eins og við þekkjum, heilmikinn tíma til að fara yfir þær umsagnir, taka á móti gestum og taka það nauðsynlega samtal.
Við umfjöllun um áætlunina fyrir ári höfðum við sameiginlega fundi í fjárlaganefnd með öðrum fastanefndum sem tengdust þeirra tilteknu málefnasviðum. Ég held að sú hugmyndafræði hafi verið vel hugsuð en hún reyndist þung í vöfum og við þurfum að finna skilvirkara fyrirkomulag á því. Við síðustu áætlun var nefndin sameiginlega með fjölmargar ábendingar sem ég held að gæti verið góður grunnur — ég varpa því hér fram fyrir fastanefndirnar eftir atvikum að fylgja þeim eftir. Svo er ákveðin verkaskipting mjög mikilvæg. Fjárlaganefnd mun fjalla um almenna kafla áætlunarinnar og kalla eftir ítarlegri sundurliðun fjárhæða og sviðsmyndagreiningum eftir atvikum. Aðrar fastanefndir gætu þá nýtt sér þá vinnu.
Virðulegi forseti. Mikilvægast er að það liggi fyrir með skýrum hætti þegar við förum af stað hvernig við vinnum sem best í nefndunum að umfjöllun um þetta stóra og mikilvæga mál. Allar ábendingar eru vel þegnar.