störf þingsins.
Herra forseti. Ég hef undanfarnar vikur furðað mig á þeirri afstöðu utanríkisráðherra að lýsa yfir stuðningi við þingforseta í Suður-Ameríkuríki, í Venesúela, til að verða forseti. Ég hef reynt að fylgjast með fréttum og skil bara eiginlega ekkert í þessu máli. Í fyrsta lagi: Hvað vitum við um þennan mann sem fjölmiðlar segja núna að sé sjálfskipaður forseti Venesúela? Fréttir eru misvísandi um það hvort þarna hafi farið fram lýðræðislegar kosningar eða ekki. Ég óttast mest að upplýsingar okkar hér á Íslandi, og þar með talið hjá utanríkisráðherra, komi úr bandarískum fréttamiðlum. Ég hef tekið eftir því að BBC segir núna að fyrstu fréttir af þessum málum hafi kannski ekki verið alveg nákvæmar, ástandið í Venesúela sé kannski ekki svona slæmt og mögulega sé þetta einhvers konar valdarán.
Ég verð bara að segja að sporin hræða dálítið þegar Bandaríkin eru að skipta sér af stjórnvöldum annarra ríkja. Við þekkjum söguna um Írak og Líbíu, saga Bandaríkjanna í Suður-Ameríku er því miður ekki góð. Fyrir nokkrum árum kom hingað fyrrverandi leyniþjónustumaður og sagðist hafa verið efnahagslegur hryðjuverkamaður í Suður-Ameríku til að brjóta niður ríkisstjórnir þar. Mér fannst eitt að lýsa yfir stuðningi við manninn en verra þegar hringt er í hann persónulega til að lýsa yfir stuðningi við hann.
Ég hef efasemdir um forseta í mörgum löndum. Ég held t.d. að þingforseti Bandaríkjanna sé miklu betri manneskja en forseti Bandaríkjanna og yrði mun hæfari forseti en mér finnst ekki að Guðlaugur eigi að hringja í konuna og segja henni það.
Hver er ábyrgð okkar á Íslandi ef þarna brýst út borgarastyrjöld? Hvar tökum við þá afstöðu? (Forseti hringir.) Erum við að hvetja til átaka og borgarastyrjalda í öðrum löndum?