149. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2019.

störf þingsins.

[15:22]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Nú á föstudaginn byrja verkföll, eftir tvo daga. Mig langar að nota tækifærið undir liðnum um störf þingsins til þess að hita upp fyrir þá umræðu sem gæti þurft að eiga sér stað á þinginu, sér í lagi ef ríkisstjórnin ákveður að setja með lögum bann á einhver verkföllin eftir að þau eru hafin.

Þegar laun þingmanna voru hækkuð á sínum tíma, 2016, um 45%, eftir að þau höfðu hækkað á sama árinu um sumarið um 15%, vissu allir í hvað stefndi. ASÍ hafði sagt um sumarið að ef tugprósentahækkanir yrðu á launum ráðamanna vissu allir að það stefndi í óefni. Síðan þá hefur ríkisstjórnin fengið gálgafrest ár eftir ár, fyrst í febrúar 2017 þar sem forsendur kjarasamninga 70% launafólks, sem núna eru lausir, stóðust ekki. Samt sem áður var ákveðið að segja þeim ekki upp. Ári síðar, 2018, gerðist það sama, forsendur stóðust ekki, en samt sem áður var ákveðið að segja þeim ekki upp.

En núna eru þessir samningar lausir bara af því að samningstíminn er liðinn. Fengist hefur gálgafrestur aftur og aftur. Ég tók saman skjal með öllum fréttum og er með linka á frumvarpið sem Davíð Oddsson lagði fram á sínum tíma, 1992, um að lækka ákvörðun kjararáðs, sem Halldór Ásgrímsson gerði 2006. Ég er með þessi frumvörp, ég er með link á allar fréttir sem varða þetta mál þannig að það verður nóg að ræða hér ef stjórnvöld ætla að banna með lögum verkföll fólks sem er að biðja um minni launahækkanir en þingmenn og aðrir ráðamenn hafa sjálfir fengið.

Mig langaði bara að byrja að hita upp, skjalið er einar 20 síður, kannski ég geri það aðgengilegt fyrir landsmenn eða deili því á Facebook-síðunni minni, einhvers konar Google Documents. Þar eru allar þessar fréttir með litlum úrskurði og þarna er hver fréttin á fætur annarri, ASÍ, SA, það eru allir á móti þessu og allir að benda á að nú sé komið að skuldadögum. (Forseti hringir.) Sjáum hvernig fer.