störf þingsins.
Herra forseti. Ég vil trúa því að mörgum hafi farið eins og mér í morgun, þeim sem hlýddu á opinn fund hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Þar var umboðsmaður Alþingis gestur og fór yfir það mál sem Seðlabanki Íslands hefur rekið gegn einu stærsta fyrirtæki á Íslandi og fleiri fyrirtækjum. Svo virðist sem Seðlabankinn og seðlabankastjóri hafi hvorki sinnt ábendingum né athugasemdum, ekki tekið mark á afstöðu ríkissaksóknara heldur haldið áfram vegferð sinni. Það er ekki oft sem umboðsmaður Alþingis tekur stórt upp í sig en á fundinum í morgun sagði hann:
„Það kann að vera að mér sé nú misboðið fyrir hönd þeirra einstaklinga og fyrirtækja sem þarna hafa átt í hlut. Það er í raun og veru aðalatriðið.“
Þetta segir umboðsmaður. Hann gagnrýndi einnig, eins og hann hefur áður gert, ummæli sem seðlabankastjóri hefur látið hafa eftir sér um mál Samherja, þar sem látið er að því liggja að þrátt fyrir að málið hafi verið látið niður falla sé ekki þar með sagt að rannsóknin hafi verið tilhæfulaus. Þetta er náttúrlega bara eins og við vitum, þegar búið er að fella mál niður og/eða fella dóm í málum eru menn ekkert að áfrýja nema þá til æðra dómstigs.
Það er því alveg með ólíkindum hvernig seðlabankastjóri og Seðlabankinn hafa farið fram í þessu máli. Ég sé ekki annan kost vænlegri fyrir þá sem þarna eiga hlut að máli innan Seðlabankans en að þeir láti þegar af störfum, þ.e. seðlabankastjóri og hans nánustu samstarfsmenn. Þeim er ekki sætt eftir þá framgöngu sem þeir hafa sýnt hér, hafa ekki (Forseti hringir.) hlustað á nokkurn mann og ekki orðið við nokkrum ábendingum eða tilmælum.