149. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2019.

störf þingsins.

[15:26]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Í reglum nr. 1/2009, um greiðslu ferðakostnaðar vegna ferðalaga á vegum ríkisins, er í 6. gr. lýst nokkurn veginn hvernig dagpeningar eigi að dekka ferðakostnaðinn að og frá flugvöllum, fæði, gistingu, minni háttar risnu og hvers konar persónuleg útgjöld. Í 7. gr. er talað um að styrkir og hvers konar hlunnindi varðandi gistingu og fæði sem ríkisstarfsmenn njóta meðan á dvölinni stendur skuli koma til frádráttar almennum dagpeningagreiðslum eins og unnt er. Í 9. gr. kemur fram að ráðherrar og forseti Hæstaréttar fái einungis 2/3 hluta dagpeninga. Það er af því að þeir fá einfaldlega hótelhlutann greiddan sjálfkrafa, aðrir ekki.

Fjárlaganefnd var núna að fá svar við fyrirspurn sem tengist þessum reglum, um það hvort fjármála- og efnahagsráðuneytið hafi fylgst með því að farið sé eftir þessum reglum gagnvart æðstu embættismönnum og ráðherrum. Einfalda svarið er: Nei, ekki hefur tíðkast að leggja sérstakt mat á umfang þess háttar viðurgjörnings eða að það hafi leitt til frádráttar á almennum dagpeningagreiðslum.

Hversu oft endurgreiddu æðstu embættismenn og ráðherrar dagpeninga? Stutta svarið er: Aldrei. Þrátt fyrir að það sé skjalfest í svörum við þingfyrirspurnum að þeir fá skutl út á flugvöll og þrátt fyrir að við vitum að morgunmatur fylgir yfirleitt með í hótelgistingunni. Það fylgdi með yfirlit um kostnað, hversu mikinn dagpening ráðherrar fengu 2018, og ef maður reiknar með u.þ.b. þriðjungi í frítt fæði, t.d. morgunmat, eru það einar 1,7 milljónir sem leggjast aukalega á laun ráðherra yfir árið. Fyrir þingmenn væru það u.þ.b. 4,8 milljónir og þetta er eftir skatt. (Forseti hringir.) Kannski finnst einhverjum þetta ekki mjög háar upphæðir en safnast þegar saman kemur. Á þessu tímabili síðan 2009 eru þetta rúmar 40 milljónir.