störf þingsins.
Herra forseti. Þingmönnum hefur orðið tíðrætt, m.a. úr þessum ræðustól undanfarna daga, um þá staðreynd að 150 millj. kr. tímabundið framlag til reksturs SÁÁ, sem var samþykkt á Alþingi við afgreiðslu fjárlaga undir árslok síðasta árs, virðist hafa horfið í hafið eða ekki skilað sér.
Nú hefur athygli mín verið vakin á því að þetta er ekkert einsdæmi. Við vitum að hjúkrunarheimili landsins berjast í bökkum, ekki síst vegna niðurskurðar sem þau hafa orðið fyrir, á sama tíma og aukin krafa er um þjónustu, m.a. vegna þess að hjúkrunarþyngd hefur aukist.
Athygli mín hefur verið vakin á því að þrátt fyrir að í þessum sal hafi verið samþykkt við afgreiðslu fjárlaga tillaga meiri hluta fjárlaganefndar um viðbótarframlög til reksturs hjúkrunarrýma upp á 276 millj. kr. til að mæta ýtrustu neyð — ég bendi á að samningar eru lausir og hafa verið það. Síðast þegar samningar voru lausir tók 20 mánuði að ganga frá málum þannig að það er ekki endilega vísbending um að þetta klárist fljótt. En sú viðbótarfjárfesting sem samþykkt var hér hefur sem sagt ekki skilað sér til hjúkrunarheimila. Hún er föst einhvers staðar á vegum heilbrigðisyfirvalda sem hafa í tvígang orðið uppvís að því að hunsa vilja Alþingis. Það sem mér þykir sérstaklega áhugavert að vita og má raunverulega segja að sé milljón evru spurningin — nú erum við að tala um þessa tvo aðila, þ.e. SÁÁ og hjúkrunarheimilin, sem gegna gríðarlega stóru hlutverki í íslensku heilbrigðiskerfi en vill svo merkilega til að eru einkareknir aðilar innan hins opinbera geira.
En spurningin er: Er þetta einsdæmi? Skila fjárlög sem samþykkt eru hér í salnum til ríkisrekinna heilbrigðisstofnana sér ekki heldur? Er þetta kerfislægur vandi eða (Forseti hringir.) veldur eitthvað annað? Þetta er sannarlega ekki góður vitnisburður um það hvernig heilbrigðisyfirvöld halda á málum. (Forseti hringir.) Það mætti frekar segja að hér væri um verulegan áfellisdóm að ræða í því hvernig heilbrigðisyfirvöld framfylgja vilja Alþingis.