149. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2019.

störf þingsins.

[15:32]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Við heyrum oft og líka héðan úr þessum ræðustól að Ríkisútvarpið sé fíllinn í stofunni í íslensku fjölmiðlalandslagi og er þá átt við stærð og fyrirferð stofnunarinnar. Við þetta er margt að athuga. Í fyrsta lagi er íslenskt fjölmiðlalandslag alls ekki nein stofa. Það ekki afmarkað svæði með fjórum veggjum. Það er ekki með neinum veggjum. Það er galopið. Hvert og eitt okkar rekur t.d. sinn litla fjölmiðil á svæði sem er í eigu erlendra aðila þar sem við deilum skoðunum okkar og hugðarefnum og alls konar skemmtilegu og fróðlegu efni og er notaður sem fóður fyrir auglýsendur. Alþjóðlegar efnisveitur starfa hér og bjóða upp á þáttaraðir og bíómyndir sem okkur myndi ekki endast ævin til að horfa á.

Í þessu umhverfi hefur Ríkisútvarpið meiri sérstöðu en nokkru sinni áður og hefur einmitt frá árinu 2014 breytt áherslum sínum frá því að keppa við einkamiðla um alþjóðlegt afþreyingarefni og einbeitt sér þess í stað að almannahlutverki sínu.

Hagstofa Íslands birti þann 4. mars fróðlega greiningu á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Þar kemur m.a. fram að af heildartekjum fjölmiðla renna 8 af hverjum 10 kr. til einkarekinna miðla en 2 kr. til Ríkisútvarpsins. Hlutur Ríkisútvarpsins í heildartekjum fjölmiðla hefur minnkað jafnt og þétt á síðustu 20 árum, úr 26% árið 1997 í 22% árið 2017. Hlutdeild Ríkisútvarpsins í auglýsingatekjum fjölmiðla er 16% á móti 84% sem runnu til einkarekinna fjölmiðla. Þetta eru nú öll fílslætin.