149. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2019.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

107. mál
[16:56]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir framsöguna og fyrir að vekja umræðu um þetta áhugaverða mál. Eins og þingmönnum er náttúrlega kunnugt um hefur verið nokkur umræða úti í samfélaginu og líka innan veggja þingsins um þessi mál og skyld mál.

Það eru tvö atriði sem mig langar að inna þingmanninn eftir áður en ég kem í heila ræðu um málið, annars vegar hvort hv. þingmaður hafi velt fyrir sér í aðdraganda þess að setja þetta mál fram að leggja hreinlega fram mál um heildarendurskoðun á reglunum. Eins og þingmaðurinn kom inn á er margt í þeim orðið býsna þroskað, skulum við segja. Hins vegar er ég að velta fyrir mér og finnst ég ekki alveg sjá út frá greinargerðinni og málinu hvort þingmaðurinn telji að þessi breyting, ef af yrði, kynni að valda skrifstofu þingsins einhvers konar aukinni vinnu eða einhverju þess háttar. Þá á ég ekki við að það væri eitthvað neikvætt eða slæmt, heldur miklu fremur hvort þurfi með einhverju móti að gera ráð fyrir því, annaðhvort í frumvarpinu eða í nefndaráliti með því, þegar þar að kemur.