þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.
Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. Hv. þingmaður situr í efnahags- og viðskiptanefnd og ég man núna að ég gleymdi að nefna við forseta hvert ég vildi að málið færi, en það er víst hefð fyrir því að mál um breytingar á lögum sem þessum fari til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Ég mun mælast til þess. En ég tel fulla ástæðu fyrir efnahags- og viðskiptanefnd til að líta til þessa máls og velta fyrir sér hvort ástæða sé til að hnýta því inn í frumvarp sem er til afgreiðslu í nefndinni um launafyrirkomulag þeirra hópa sem áður heyrðu undir kjararáð vegna þess að þetta frumvarp mætti efnislega allt eins vera breytingartillaga við það mál. En ég læt þingmanninum það eftir.
Hér er velt upp hugmynd um heildarendurskoðun þessara reglna. Það er örugglega full ástæða til að skoða alla þætti í þessu, hvort sem er starfskostnaður, ferðakostnaður, akstursgreiðslur eða húsnæðiskostnaður, og hægt að tala lengi um það. Sú vinna er í gangi í forsætisnefnd. Ég held að ein af afleiðingum þeirrar umræðu sem var hér fyrir ári sé sú að forsætisnefnd sé nú að skoða þessi mál í heildarsamhengi. Það tekur tíma. Þessi breyting er hins vegar svo rakin að mínu mati og tekur engan tíma að það ætti að vera hægt að kýla á hana rétt sem snöggvast.
Varðandi kostnaðarauka fyrir skrifstofu Alþingis vegna þessa reikna ég með að hann verði einhver. En á móti kemur sá duldi sparnaður sem felst í því að fólk fer mögulega að telja minna inn sem starfskostnað sem nemur hámarksgreiðslunni. Til viðbótar eru hér undir 11 ráðherrar sem hver um sig fær 480.000 á ári í (Forseti hringir.) starfskostnaðargreiðslu. Það er hægt að dekka góðan hluta af starfinu með þeim peningum.