149. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2019.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

107. mál
[17:02]
Horfa

Flm. (Andrés Ingi Jónsson) (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þingmaðurinn svaraði eiginlega spurningu sinni sjálfur. Ég þekki ekki tæknilausnir eða kerfi sem geta haldið utan um þetta, en ég held einmitt að hliðstæðan í því kerfi sem heldur utan um akstursendurgreiðslur þingmanna sé gott dæmi um að svona kerfi þarf ekki að vera flókið eða erfitt í innleiðingu. Ég treysti því að ef þetta frumvarp nær fram að ganga fari skrifstofa Alþingis létt með að útfæra það vel af því að það skiptir máli að þarna fari ekki straumur pappírsafrita á milli skrifstofa heldur geti þingmenn einfaldlega sett nótur inn í tölvukerfi og þær fari nánast sjálfkrafa alla leið í opinbera birtingu þegar endurgreiðsla hefur átt sér stað.