þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir að fá að vera á málinu, hv. þm. Andrés Ingi Jónsson. Þetta er hið besta mál sem þýðir í rauninni að lækka skuli ákveðnar greiðslur til þingmanna sem jafna má við laun, um 40.000. Geti þingmenn framvísað reikningum fyrir einhvers konar starfskostnaði geta þeir fengið hann endurgreiddan. Ef ég þarf t.d. að vinna langt fram eftir þegar ég er í malbikinu og kemst ekki heim með öðrum hætti borgar fyrirtækið fyrir það. Ef það kemur til að mynda tjöruskip eða asfaltskip um nóttina og ég þarf að komast heim á þeim tíma borgar fyrirtækið fyrir að senda mig heim með þeim hætti sem hægt er, t.d. með leigubíl. Ég er þó alltaf á rafmagnshjólinu mínu þannig að í mínu tilfelli þarf þess ekki. Það er eðlilegt fyrirkomulag að fyrirtækið beri einhvers konar starfstengdan kostnað en það á ekki að fara inn í launin. Það ætti ekki að vera fastur starfstengdur kostnaður.
Þetta frumvarp færir fé úr launaumslaginu hjá þingmönnum og þingmenn leggja út fyrir starfskostnaði, skila reikningum og fá þá starfskostnaðinn greiddan, eins og leigubílaferð heim til sín að nóttu til eftir langan þingfund og mikið málþóf.
Þegar kjararáð tók ákvörðun um að hækka laun þingmanna langt umfram almenna launaþróun 2016 brugðust formenn allra flokka þannig við að þeir ákváðu í desember það ár — mig minnir að það hafi verið síðla í desember, ég held að ákvörðunin hafi síðan verið tekin í janúar — að taka þessar starfstengdu greiðslur; annars vegar ferðakostnað í kjördæmi sem var 83.852 kr., og færa hann niður í 30.083, sem sagt úr tæpum 84.000 niður í rúmlega 30.000. Og hins vegar að færa niður starfskostnaðinn, það sem þingmenn lögðu út fyrir, úr rúmum 90.000 kr. í 40.000.
Samkvæmt þessu frumvarpi tek ég þessar 40.000 kr. úr launaumslaginu og tengi raunverulegum starfskostnaði, sem er mjög gott.
Þegar sú ákvörðun var tekin í forsætisnefnd bókaði ég við þá ákvörðun í fundargerð forsætisnefndar — ég get upplýst um það hér vegna þess að það er mín eigin bókun sem mér er fullheimilt að upplýsa um, með leyfi forseta:
„Fyrir hönd Pírata samþykki ég að kjör þingmanna verði lækkuð eins og tillagan kveður á um en bóka að hún gangi ekki nógu langt til að ná markmiðum verkefnisins til forsætisnefndar frá formönnum allra flokka á Alþingi, að skapa sátt um laun og kjör þingmanna þar sem launafólk þarf að sætta sig við að viðmið launanna sé frá 2013 meðan við launakjör þingmanna er notað viðmiðið 2006.“
Það sem þetta þýddi var að verið var að bregðast við að einhverju leyti, sem var gott og við samþykktum það, þ.e. að verið væri að lækka þessar greiðslur. En það var bara ekki nóg. Hvernig vissi ég að það væri ekki nóg? Jú, vegna þess að þegar þessar tillögur lágu fyrir í forsætisnefnd hringdi ég í Gylfa Arnbjörnsson, formann ASÍ, og spurði: Hvaða sjónarmið eru til staðar varðandi þetta? Ég fór líka á fund hjá Samtökum atvinnulífsins. En svörin sem ég fékk frá Gylfa voru að samstarfið um sátt á vinnumarkaði á þessum tíma, sem búið var að binda inn í kjarasamninga, sem eru einmitt að losna núna — væri á þann veg að menn ætluðu að reyna að komast að sátt á vinnumarkaði og reyna að vinna sig í átt að norrænu vinnumarkaðsmódeli, þ.e. SALEK-samkomulaginu, og bundu það inn í kjarasamningana að miða þyrfti launahækkanir við 2013.
Núna á að ná sátt á vinnumarkaði, varðandi 70% kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, og miða við árið 2013 í samstarfi við stjórnvöld til þess að geta náð sátt á vinnumarkaði, en stjórnmálamenn á Alþingi miða við 2006.
Þetta nefndi ég ítrekað. Ég nefndi það við hæstv. fjármálaráðherra Bjarna Benediktsson í óundirbúnum fyrirspurnum. Hann brást ekki ánægður við og nefndi að þingmenn hefðu setið eftir, þeir hefðu bæði fengið launalækkun og launafrystingu í hruninu. Það væri kominn tími til að fá almennilega hækkun. Þess vegna þyrfti að horfa til 2006 en ekki 2013.
En þá er það höfrungahlaupslögmálið. Þá vilja náttúrlega aðrir koma á eftir, við þekkjum hvernig þetta hefur farið.
Frumvarp hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar er aftur á móti nákvæmlega það sem gera átti á sínum tíma. Það átti að fara alla leið með þetta og hefði þurft að gera meira, en þetta hefði verið skref sem gott hefði verið að taka þá.
Ég fagna því að þetta frumvarp sé komið fram núna. Ef Alþingi afgreiðir þetta mál gæti það sýnt einhvers konar vilja til að taka á málum, að við á þingi ætlum ekki að vera með einhverjar greiðslur í launaumslögum okkar sem eru fastur starfskostnaður, í staðinn fyrir að þurfa að leggja fram reikninga eins og hjá öllum öðrum fyrirtækjum og aðrir almennir landsmenn þurfa að gera.
Það væri gott innlegg í þá stöðu sem nú er á vinnumarkaðnum. Ég veit ekki hvort það dugir til akkúrat núna. Ég er ekki alveg með tölurnar á hreinu, þ.e. við fengum þessa gríðarlegu hækkun 2016. Síðan þá höfum við ekki fengið neina hækkun en launaþróun hefur verið upp á við. Ef við miðum við launaþróun 2013, sem er eðlilegt, veit ég ekki alveg hvar línurnar skerast. En einhvern tímann á þessu ári munu þær munu skerast.
Eftir stendur að allt sem við erum með undir línunum fer í vasa okkar, nema hjá þeim sem ákveða að verja því í önnur málefni, eins og forseti Íslands sem sagðist ekki ætla að taka sína hækkun og ætlaði að nota hana í góðgerðarmál. Sá sem hér stendur notaði þessa upphæð þegar hann kærði kjararáð með VR. Þá skiptum við þeirri greiðslu til helminga. Kostnaðurinn var 3 millj. kr., þá fóru 1,5 milljónir úr mínum vasa til að greiða fyrir það.
Ég fylgdi einnig fordæmi Andrésar Inga Jónssonar um að hætta að taka þetta inn í launaumslagið þegar ég áttaði mig á því að það væri hægt. Þegar ég kom fyrst á þing og spurði út í þetta var mér sagt að það væri ekki hægt. Það er samt sem áður hægt. Ég sá að Andrés Ingi Jónsson gerði þetta og lét haga málum þannig að ég myndi leggja fram reikninga fyrir starfskostnaði og fengi þá bara greidda til baka ef ég skilaði reikningum. Þetta var í upphafi síðasta árs. Ég notaði þetta síðan ekki neitt. Ég gleymi alltaf að skila reikningum, ég er ekki í þessu fyrir peningana, ég gleymi yfirleitt alltaf peningunum, veit ekkert hvað ég er með í laun eða hvernig það allt saman lítur út — nema það sem ég er búinn að reikna út og reyna að leiðrétta þætti varðandi almenna launaþróun því að það er það sem er mikilvægt. Ef við ætlum að byggja sátt í þessu samfélagi, á vinnumarkaði, og þar af leiðandi stöðugleika, bæði þar og í efnahagslífinu, verður hún að grundvallast á sanngirni.
Við vitum að sanngirni er grundvallargildi í öllum samfélögum. Það er meira að segja grundvallargildi í samfélögum apa. Það er byggt inn í heilabrautir okkar, sanngirni. Maður getur ekki grundvallað sátt á annan hátt.
Þetta gæti komið okkur á þann stað að launaþróunin yrði í samræmi við almenna launaþróun á vinnumarkaði. Ég er ekki alveg viss um það en hún kemst líklega mjög nálægt því eða gæti jafnvel komið okkur yfir það strik. Þetta mál kemur til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og ég mun kalla eftir þeim gögnum og sjá hvernig það lítur út núna þannig að við tökum upplýsingar byggðar á staðreyndum og sjáum hvernig staðan er.
Hækkunin á sínum tíma, að ég tali ekki um hækkun forstjóra ríkisfyrirtækja upp á síðkastið, hefur náttúrlega haft þær afleiðingar að verkalýðshreyfingin er vöknuð og það er gott. Það mætti kannski segja að hækkun kjararáðs á sínum tíma, á launum ráðherra, þingmanna og annarra ráðamanna, hafi á endanum valdið því að það varð „vor í verkó“. Kannski er Vor í verkó skilgetið afkvæmi kjararáðs og það er svolítið áhugavert. En það er að sjálfsögðu líka afkvæmi vanrækslu stjórnmálamannanna gagnvart því að bregðast við öllum þeim tækifærum sem þeir fengu á leiðinni; frumvarpi Pírata um þessa leiðréttingu 2017, breytingartillögu 2018 um þessa leiðréttingu, kæru minni og VR, kæru kjararáðs, kæru ákvörðunarinnar sem ríkislögmaður vildi bara vísa frá — við áfrýjuðum til Landsréttar. Því var vísað frá endanlega þar þannig að allt vald í landinu er búið að segja að þessar hækkanir hafi verið réttlætanlegar, sama hvort það er framkvæmdarvaldið, sem kjararáð var, stjórnvöld, sem ákváðu að grípa ekki inn í, eins og bæði Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson reyndu að gera á sínum tíma; löggjafinn, sem greip ekki inn í, hvorki með því að fara áfram með frumvarp Pírata né samþykkja breytingartillögu Pírata á málinu eða þá dómsvaldið með því að taka málið til efnislegrar meðferðar til að hægt væri að leiðrétta það þar.
Þetta er mjög gott mál. Það er komið inn á þeim tíma sem fólk getur mögulega sýnt einhvern vilja. Ég held það sé einhvern veginn síðasti sénsinn fyrir Alþingi að sýna einhvern vilja varðandi laun og kjör, að sýna einhverja sanngirni varðandi það áður en allt springur í loft upp í verkföllum. Nú eru þessir tveir dagar liðnir og við náum kannski ekki að klára frumvarpið, en ef við náum málinu út úr nefnd og getum farið að ræða það hér verður kannski einhver vilji sýndur. Þetta er síðasti séns til að sýna þann vilja.