þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.
Virðulegi forseti. Ef allir þingmenn væru jafn gleymnir á að skila reikningum og hv. þingmaður yrðu fjárhagsleg áhrif af þessari breytingu mjög jákvæð.
Ég vil fyrst af öllu þakka þingmanninum stuðninginn við málið. Mér datt í hug þegar hann var að tala að við megum ekki gleyma því að nefna þátt hv. samflokksmanns þingmannsins, Björns Levís Gunnarssonar, sem með fyrirspurnum um aksturskostnaðargreiðslur kom af stað ákveðinni þróun sem þetta er hluti af. Þetta er hin hliðin á þeim peningi. Fyrst þurfum við að kalla eftir gögnum og svo þurfum við að bregðast við með því að breyta reglum, breyta þeim á mjög tengdu sviði.
Svo þykir mér líka mjög gagnlegur þessi samanburður sem þingmaðurinn kom með varðandi störf í einkageiranum. Ég held að fólk átti sig ekki alltaf á því að hlutverk þingmanns á Alþingi er allt annað en starfsmanns innan fyrirtækis. Venjulegt skrifstofufólk hjá fyrirtæki getur fengið fyrirtækið til að standa straum af nauðsynlegum ferðalögum á ráðstefnur, námskeið og af ýmiss konar áskriftum eða hvað það er sem þarf til að geta sinnt starfinu með sóma. Við þingmenn fáum vissulega starfsaðstöðu, við fáum skrifborð og tölvu og skrifstofu. Við fáum sérfræðiþjónustu. En það er mjög margt sem við fáum ekki frá skrifstofu þingsins sem starfsmenn á venjulegum skrifstofum, ef svo má segja, fá. (Forseti hringir.) Starfskostnaði er einfaldlega ætlað að koma til móts við það og setja það í hendur hvers þingmanns að meta hvar þörfin er mest. Þá skiptir máli að það sé fyrir opnum tjöldum.