þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.
Herra forseti. Ég heyrði ekki neina beina spurningu en, já, ég er mjög gleyminn á að senda inn þessa reikninga. Við fáum greitt internet. Ég er með það hjá fyrirtæki sem Alþingi borgar ekki beint til og þess vegna eru það einu reikningarnir sem ég hef komið með frá upphafi. Ég gleymi alltaf þessum leigubílum og öllu hinu sem maður stendur straum af.
Ég var að lesa þetta núna betur og ég sé að við getum notað þetta til að ráða sérfræðiaðstoð, sem er gríðarlega gagnlegt. Ég barðist mikið fyrir því að við fengjum einmitt meiri sérfræðiaðstoð. Mér finnst persónulega rétt og ég sagði það strax eftir hækkun kjararáðs á kjördag 2016, bara á mánudeginum eftir kjördag, tveimur dögum eftir, þegar ég og hv. þm. Sigríður Á. Andersen vorum að ræða þessa hækkun, að þingmenn ættu bara að vera á meðallaunum. Ekki vegna þess að álagið á okkur sé ekki svo mikið o.s.frv., nei, heldur bara vegna þess að þá erum við nær hinum almenna borgara. Þá finnum við það miklu betur fjárhagslega hvernig hin fjárhagslega tilvera fólks er sem er á meðallaunum. Mér finnst það vera gríðarlega mikilvægt og gagnlegt fyrir þingmenn.
Á móti myndi ég vilja að þingmenn væru með miklu meiri aðstoð í kringum sig. Við sjáum það t.d. í danska þinginu. Þeir eru með 2,5 starfsmenn á hvern þingmann. Þegar ég fer yfir þau ábyrgðarsvið og þar af leiðandi verkefni sem detta í fangið á mér sem þingmaður er ég bara í þinginu með níu hatta, níu mismunandi ábyrgðarsvið. Undir þau falla alls konar verkefni sem ég þarf að sinna. Þá erum við ekki að tala um flokksstarfið o.s.frv., sem fólk þarf að sinna líka. Mér reiknast til, ef ég horfi bara á öll verkefnin sem ég hef í þingstörfunum, að ég myndi þurfa a.m.k. tvo starfsmenn. Ég myndi þurfa einhvern góðan verkefnisstjóra og ritara sem myndi halda utan um allt svo að ég væri ekki að missa bolta og gleyma o.s.frv. og tapa þar af leiðandi tækifærum. Hins vegar þyrfti (Forseti hringir.) ég að hafa gott aðgengi að lögfræðingi sem ég gæti treyst (Forseti hringir.) til að sinna fyllilega öllu sem þyrfti að gera varðandi slík mál. Þá væri ég líklega kominn á góðan stað.