149. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2019.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

107. mál
[17:26]
Horfa

Flm. (Andrés Ingi Jónsson) (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þingmaðurinn nefnir hér aðstöðu þingmanna í öðrum löndum og ég held að það gæti verið gagnlegt fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að skoða þann samanburð, ekki endilega til að tala fyrir því að við blásum út kerfið, því að sum þing eru með mjög rausnarlega pakka í kringum sína þingmenn, að ég tali ekki um t.d. Evrópuþingið þar sem hver þingmaður getur verið með fimm til tíu manns í vinnu og skrifstofu á tveimur stöðum og heilmikla starfsemi í kringum sig. En þeir flaska stundum á því að ráðstafa þeim fjármunum á réttan hátt. Þeir eru sumir staðnir að því að ráða venslafólk í störf sem viðkomandi síðan sinnir ekki. Þetta er leið til að koma peningi fram hjá kerfinu. Þetta endurspeglar enn og aftur hvað það skiptir miklu máli að allt sé uppi á borðinu og gagnsætt.

Þingmaðurinn taldi líka upp ýmsa kostnaðarliði sem er hægt að nota. Það að geta fengið sérfræðiaðstoð eða handleiðslu, bara stjórnendaráðgjöf, er nokkuð sem skiptir miklu máli. Við erum hér í miklu álagsumhverfi. Ef við drögum aftur fram samanburðinn við einkamarkaðinn held ég að fólk á einkamarkaði sem starfar í jafn miklu áreiti og þingmenn gera oft og í umhverfi sem gengur út á að við séum í átökum hvert við annað, og gerir það eiginlega eðli máls samkvæmt, væri (Forseti hringir.) fyrir löngu komið með vinnustaðarsálfræðing í fasta vinnu við að halda utan um sín störf sem er eðlilegt til að við getum kjarnað okkur og haldið rótfestu í okkar störfum. Það þjónar ekki umbjóðendum okkar ef við brennum út í starfi eða endum bara í ruglinu.