149. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2019.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

107. mál
[17:29]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (andsvar):

Þingstarfið er náttúrlega skítadjobb. Þetta er gríðarlega mikið álag, langur vinnutími, að sinna þinginu, sinna öllu öðru sem þarf að sinna, reyna að sinna fjölskyldunni o.s.frv. Þetta er skítadjobb. Það sem vantar er meiri aðstoð. Horfum bara svona á þetta: Segjum að við myndum lækka launin okkar og leiðrétta þau, vera sanngjörn og vera samstiga þjóðinni. Ég held að það sé það sem þjóðin vill, að þingmenn séu samstiga henni í sínu starfi. Þar skipta laun máli og ég tala nú ekki um svona launahækkanir.

Það er gott að þetta frumvarp er komið fram og eins og ég segi er það einhvern veginn síðasti sénsinn fyrir Alþingi að taka eitthvert skref í áttina að því að vera samstiga þjóðinni, sýna einhvern vott af sanngirni í launum og kjörum, eitthvað í áttina að almennri launaþróun 70% launafólks sem núna eru með lausa samninga. Þetta væri skref sem gæti sýnt vilja til þess. Síðasti séns.

Varðandi laun almennt held ég Alþingi myndi fá miklu meiri virðingu hjá þjóðinni ef við værum á meðallaunum. Það væri jafnvel betra ef við værum á einhverju hlutfalli af lágmarkslaunum. Það myndi líka skapa ákveðinn jákvæðan hvata til að vera alltaf að hífa upp lágmarkslaunin. Það væri eina leiðin fyrir þingmenn til að hækka sín laun. Ég held að það væri jákvæður hvati í samfélaginu. Það væru líka hvati í þá átt sem The Economist og fjármálatímarit á Vesturlöndum kalla eftir núna, að það verði að minnka álögurnar o.s.frv. á þá sem minnst hafa og stilla skattkerfið til þess að auka jöfnuð. Þetta er það sem fjármálatímarit á Vesturlöndum eru að tala um akkúrat núna og leggja fram ítarlegar tillögur um. Ég held að við myndum njóta réttmætrar virðingar ef við værum meira samstiga þjóðinni í okkar störfum.