þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.
Virðulegi forseti. Ég vil við lok umræðunnar þakka þeim sem tóku þátt. Þetta eru búin að vera góð skoðanaskipti og eins og hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson sagði hefur umræðan verið hófstillt og málefnaleg. Ég held að það skipti máli. Ef við lítum á þetta sem leið til að byggja upp traust skiptir máli að við getum talað um þetta án þess að missa okkur í einhver gífuryrði.
Það eru tvö, þrjú atriði sem ég hef aðeins verið að melta eftir að þau komu fram í umræðunni og mig langar að koma inn á. Í fyrsta lagi það hvaða kostnað sé eðlilegt að telja undir starfskostnað. Þar togast á sjónarmið um að vera með ítarlega og alltæmandi upptalningu eða grófa lýsingu og síðan sé það látið meira í hendur hvers þingmanns að meta hvað eigi heima undir starfskostnaðarliðnum. Hann eigi það síðan bara við þá sem rýna gögnin á opnum vef Alþingis hvort hann hafi farið út af beinu brautinni eða ekki.
Það er hægt að skoða ýmis dæmi úr þessari upptalningu. Til dæmis var í upphaflegri útgáfu risna eitt af því sem mátti telja fram sem starfskostnað. Mér var alltaf kennt að það væri skrautyrði yfir áfengi. Ég held að í ljósi reynslu Alþingis af umgengni við áfengi í störfum þingmanna séum við ekki að fara að setja það aftur inn í þessar reglur.
Hér hafa verið nefnd blómin og gjafirnar sem komu inn einhvern tíma eftir 1995 og eru í gildandi reglum. Maður spyr sig einmitt: Við hvaða tilefni kalla störf þingmanna á þennan útgjaldalið? Ég held að það sé, eins og þingmenn hafa nefnt, full ástæða til að skoða þessa hluti, alveg óháð því hvort við náum að samþykkja þetta frumvarp eða ekki. Það er full ástæða fyrir forsætisnefnd til að leggjast aðeins yfir það til hvers þessi starfskostnaður eigi að vera. Hann hlýtur að eiga að vera til þess að við getum sinnt störfum okkar betur. Það að við getum talið styrki til stjórnmálaflokkanna fram sem starfskostnað held ég t.d. að hafi ekki áhrif á gæði starfa okkar. Þarna eru margir liðir sem í dag orka tvímælis og forsætisnefnd gerði vel í að skoða þá.
Það er kannski rétt, til að halda þeim góða anda sem hefur verið yfir þessari umræðu, að nefna að ég held að á öllum þessum tíma, frá 1995, hafi hvert skref verið stigið af góðum vilja. Þetta eru reglur sem hafa þróast á löngum tíma og þar með hefur heildarmyndin kannski skekkst aðeins. Sumt af því sem okkur þykir orka tvímælis í dag kemur einhvern veginn hálfóvart inn í reglurnar. Eins held ég að forsætisnefnd hafi lækkað þessar greiðslur af mjög góðum vilja til að bregðast við ákvörðunum kjararáðs fyrir tveimur árum, þótt það sé skoðun mín, svona litið í baksýnisspegilinn, að þetta hafi kannski ekki verið rétt ráðstöfun. En það var ákall í samfélaginu og frá öllum stjórnmálaflokkum að bregðast við rausnarlegri launahækkun kjararáðs með einhverjum hætti og forsætisnefnd gerði það. En nú höfum við tækifæri til að bregðast við af meiri yfirvegun. Það að fella starfskostnaðargreiðslur í fastara faglegra form gæti verið skref í þá átt.
Svo má ég til með að nefna örstutt hv. þm. Jón Þór Ólafsson sem kom ítrekað inn á stóra samhengið í þessu máli, sem eru kjör alþingismanna almennt. Við þurfum að deila kjörum með almenningi sem þingmenn. Auðvitað eru rök með því að þingmenn hafi góð laun en að þeir hafi laun sem eru það há að þessi tenging við almenning virðist rofna getur ekki verið gott. Þess vegna vona ég að efnahags- og viðskiptanefnd takist á við verkefnið sem felst í frumvarpinu sem þar liggur fyrir, um ákvörðun launa þeirra sem áður heyrðu undir kjararáð, af nokkrum metnaði. Það er full ástæða til að skoða grunnlaunasetningu allra þeirra hópa sem þar eru undir. Ákvarðanir kjararáðs sem sópað var inn í það mál ná yfir langt tímabil og kallast á við aðstæður sem oft eru breyttar þannig að efnahags- og viðskiptanefnd gerði vel í að skoða það mál ofan í kjölinn.
Aftur þakka ég umræðuna, herra forseti, og ítreka að þetta mál er eitt af því sem við þingmenn getum gert til að líta í eigin barm og sýna að við getum mótað aðstæður starfa okkar þannig að það geti mögulega byggt upp aukið traust. Það er einfaldlega þannig að þegar við erum sjálf sem persónan þingmaður að ráðstafa opinberu fé, þegar við erum að taka ákvarðanir sem skipta máli, verða þær að þola dagsljósið. Út á það gengur þetta einfalda mál.