149. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[18:05]
Horfa

Flm. (Þorsteinn Víglundsson) (V):

Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak, lögum um aukatekjur ríkissjóðs, áfengislögum, lögum um landlækni og lýðheilsu og lögum um fjölmiðla, með síðari breytingum. Það varðar smásölu áfengis.

Ekki þarf að fara mörgum orðum um að þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta mál kemur til umræðu í þessum sal. Á síðustu árum hafa verið lögð hér fram frumvörp á 144. löggjafarþingi, 145. löggjafarþingi og 146. löggjafarþingi. Þetta mál er endurflutt frá því 148. Reyndar er það nokkuð frábrugðið þeim sem ég nefndi hér. Málið tekur í öllum meginatriðum mið af vinnu allsherjar- og menntamálanefndar á síðasta kjörtímabili, réttara sagt af þeim breytingum sem það tók á 146. löggjafarþingi.

Mér telst til að í það heila hafi í það minnsta verið mælt fyrir breytingum á þessum lögum 11 sinnum hér í þinginu. Það væri óskandi að við tækjum afstöðu til málsins, hvort sem er af eða á. Áður en lengra er haldið ætla ég að leyfa mér að halda því fram hér að þetta mál snúist einkum um afstöðu okkar til viðskiptafrelsis. Í rökum gegn breytingu eða afnámi á ríkiseinokun á áfengisverslun hefur fyrst og fremst lýðheilsusjónarmiðum verið haldið á lofti og sjónarmiðum sem ég ber fulla virðingu fyrir, að óhófleg áfengisneysla sé mjög skaðleg heilsu manna og því beri með einokun ríkisins að hefta aðgengi með öllum tiltækum ráðum.

Vandinn við þann rökstuðning er hins vegar sá að á undanförnum þremur áratugum hefur aðgengi að áfengi stóraukist undir þessari sömu ríkiseinokun. Útsölustöðum áfengis í smásölu hefur fjölgað verulega, frá því að vera sjö, átta talsins fyrir þremur áratugum eða svo í um 50 í dag. Opnunartími hefur verið lengdur. Staðsetningar verslana hafa verið færðar, m.a. inn í allar helstu verslunarmiðstöðvar landsmanna, oftar en ekki við hliðina á eða í grennd við matvöruverslanir, sem hefur verið mjög umdeilt viðfangsefni fyrri útgáfna af þessum lögum þar sem málið snerist þá um að heimila áfengisverslun inni í matvöruverslunum. Það er þó ekki viðfangsefni þessa máls.

Á sama tíma hefur vínveitingastöðum fjölgað gríðarlega. Þeir teljast vera, held ég, um 1.200 í dag sem hafa útgefin vínveitingaleyfi þar sem við treystum einkaaðilum alveg fyllilega til að starfrækja þá starfsemi. Auðvitað er um að ræða fjölda annarra þátta. Þetta eru viðkvæmar vörur sem geta haft verulega skaðleg áhrif á heilsu manna, m.a. vegna hugsanlegrar misnotkunar, en við treystum einkaaðilum þó aftur til að selja eða höndla með viðkomandi vörur. Er þar nærtækast að nefna tóbak. Einnig mætti nefna lyfjaverslun og fleiri dæmi mætti vafalítið telja til.

Í þessari rökræðu hef ég ekki orðið var við að með þeirri miklu fjölgun á vínbúðum hins opinbera, sem orðið hefur á undanförnum árum, hafi þessum rökum um lýðheilsusjónarmið verið haldið mjög hátt á lofti. Það hefur hins vegar orðið talsvert háværari opinber umræða þegar lokað hefur verið einstökum verslunum, þá hefur verið kvartað sáran undan því.

Herra forseti. Ég ætla að fara í efni máls. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um verslun með áfengi og tóbak, lögum um aukatekjur ríkissjóðs, áfengislögum og lögum um gjöld af áfengi, sem fyrr segir, með það að markmiði að einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis verði aflagt, að smásala með áfengi verði gefin frjáls að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og að sérstök áhersla verði á eflingu lýðheilsusjóðs með auknum framlögum ásamt því að heimilt verði að auglýsa áfengi, með nokkrum takmörkunum þó.

Hér er því sem fyrr segir í grundvallaratriðum um annað mál að ræða en áður hefur verið rætt á þingi. Frá því að sameinaðri verslun áfengis og tóbaks var komið á fót árið 1961 hefur allt almennt viðskiptaumhverfi gjörbreyst, samfélagið hefur í senn orðið opnara og fjölbreyttara. Áfengismenning og áfengisneysla hefur líka gjörbreyst á sama tíma. Vín er orðið stór hluti gróskumikillar matarmenningar hér á landi og innlend framleiðsla áfengis er að festa sig í sessi og er orðin iðnaður sem er nátengdur landkynningu og þjónustu við sívaxandi fjölda ferðamanna.

Hér má einnig hafa í huga þá gríðarlegu breytingu sem orðið hefur á stuttum tíma. Fjöldi smáframleiðenda á áfengi, sér í lagi bjór, og þá sérhæfðum bjór getum við sagt, hefur sprottið upp. En mikilvægt er að hafa í huga þegar við ræðum þetta mál að staða þessara smáu framleiðenda er allt önnur en stórra framleiðenda varðandi það að koma vöru sinni á markað, sér í lagi í verslunum vínbúðanna þar sem það er háð verulegum takmörkunum varðandi veltu úr sölu viðkomandi tegunda.

Það er eðlilegt að fullyrða hér að núverandi fyrirkomulag einokunarsölu ríkisins á áfengi er veruleg aðgangshindrun fyrir smærri aðila að markaði þar sem þeim er ekki heimilt að auglýsa vöru sína. Veltuviðmið vínbúðanna gera þeim líka mjög erfitt fyrir að koma vörum sínum í almenna dreifingu í þeim sömu verslunum. Þá hefur aðgengi að áfengi á undanförnum árum og áratugum stóraukist, eins og áður var nefnt. Útsölustöðum ríkisins með áfengi hefur fjölgað verulega.

Meginefni frumvarpsins er sem fyrr segir afnám einkaleyfis smásölu áfengis. Með afnámi einkaleyfis ríkisins á smásölu og með því að einkaaðilum verði heimiluð slík sala að uppfylltum ákveðnum skilyrðum er því gert ráð fyrir í frumvarpinu að almennt verði heimilt að selja áfengi í smásölu í sérverslunum en ekki stórmörkuðum eða matvöruverslunum. Þá er í frumvarpinu kveðið á um að ráðherra geti í reglugerð kveðið á um að í tilteknum sveitarfélögum verði heimilt að veita undanþágu frá meginreglunni um sérverslanir enda sé talið óhagkvæmt sökum fámennis að reka sérverslun einungis með áfengi. Í þeim tilfellum skuli áfengi þá vera í afmörkuðum rýmum eða í sérrými innan almennra verslana, þó þannig að það sé ekki sýnilegt viðskiptavinum almennu verslunarinnar. Er það gert til að koma til móts við þau sjónarmið að fyrirkomulag sérverslana gæti reynst óhagkvæmt á landsbyggðinni.

Vert er að hafa í huga að þetta er í sjálfu sér keimlíkt þeim hætti sem þegar er hafður á varðandi áfengisverslun í smærri byggðarlögum í dag. Ekki er lagt til í frumvarpi þessu að ÁTVR verði gert að hætta smásölu á áfengi. Afnám einkaleyfis ríkisins á smásölu kallar engu að síður á endurskoðun á þeirri starfsemi með hliðsjón af samkeppnisreglum, enda er mikilvægt að einkaaðilar standi ekki höllum fæti í samkeppni við ríkið þegar að þessari vöru kemur. Þá gerir frumvarpið ráð fyrir því að áfengisauglýsingar verði heimilaðar með takmörkunum. Þær takmarkanir eru þá þær helstar að hvers kyns áfengisauglýsingum skuli fylgja aðvörunarorð um skaðsemi áfengis og að aldrei megi beina áfengisauglýsingum að börnum eða ungmennum.

Rétt er að stíga varlega til jarðar vegna sérstöðu áfengis sem ekki á að kynna sem sjálfsagða eða almenna neysluvöru. Er því lögð áhersla á að áfengisauglýsingarnar miði fyrst og fremst að því að kynna vöruna í tengslum við sölu hennar eða framleiðslu. Ágætt er að hafa í huga í þessu samhengi að hér á landi er áfengisauglýsingar víða að finna þrátt fyrir auglýsingabann.

Tilgangur breytinganna er því fyrst og fremst að stýra og hafa eftirlit með áfengisauglýsingum betur en nú er og jafna út ósanngjarnan aðstöðumun erlendra og innlendra aðila í þessum efnum. Í gildandi rétti eru hvers kyns auglýsingar á áfengi og einstökum áfengistegundum bannaðar. En það felur í sér mismunun á þann veg að erlendir framleiðendur hafa greiðan aðgang að auglýsingum sem birtast hér á landi, hvort sem um er að ræða auglýsingar á erlendum kappleikjum, á internetinu eða í öðrum hljóð-, prent-, eða myndmiðlum, svo einhver dæmi séu tekin.

Með aukinni netvæðingu hefur aðgengi innlendra neytenda að auglýsingum er varða áfengi aukist til muna og þykir því ljóst að núverandi bann hefur einna helst áhrif á innlenda framleiðslu og innlenda vöruþróun. Einnig hefur tíðkast um langa hríð að stærstu áfengisframleiðendurnir sem framleiða einnig léttöl hafi auglýst þá vöru með skírskotun til sambærilegrar áfengrar vöru og hafa þannig farið fram hjá banninu og notið samkeppnislegs forskots í kynningu vegna framleiðslugetu sinnar.

Þess ber einnig að geta að verði smásalan gefin frjáls án þess að auglýsingabann verði afnumið mun það skapa ójafnvægi milli smásölu og heildsölustigs. Smásalar yrðu því næsta einráðir um vöruframboð. Þær breytingar sem lagðar eru til á lagaumhverfi viðskiptaboða með áfengi eru í samræmi við þær ábendingar sem bárust um eldra frumvarp og lutu að samræmingu við lágmarksreglur um innihald og framsetningu áfengisauglýsinga sem fram koma í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins frá 11. september 2007.

Þá hefur við gerð frumvarpsins verið tekið mið af þeirri vinnu sem birtist í skýrslu starfshóps á vegum fjármálaráðherra um heildarendurskoðun áfengislöggjafarinnar frá því í janúar 2010. Þar var lagt til að heimila skyldi auglýsingar á áfengi með takmörkunum og raunar má líka finna sömu tillögur í nýlegum tillögum varðandi starfsumhverfi fjölmiðla hér á landi. Samhliða þessu er lagt til að framlög til forvarna og eflingar lýðheilsu verði stóraukin þannig að sérstakt gjald, sem í dag er 1% af áfengisgjaldi og rennur í lýðheilsusjóð, verði hækkað í 5%.

Þá er einnig lagt til að nýju ákvæði til bráðabirgða verði bætt við lög um landlækni og lýðheilsu þar sem lýðheilsusjóði verði gert að leggja sérstaka áherslu á forvarnaverkefni á sviði áfengisvarna á árunum 2020–2024. Breytingin á verslun með áfengi og tóbak sem hér er lögð til felur aðeins í sér að aðrir en hið opinbera geti annast smásölu áfengis, en undir sömu skilmálum þó, sem og rýmkun á heimildum til auglýsinga. Þannig felur frumvarpið ekki í sér tillögur um breytingar á áfengisstefnu, áherslum í tóbaksvörnum eða tekjuöflun ríkisins á þessu sviði.

Ég held að það sem skipti höfuðmáli þegar við skoðum kjarna þessa máls sé að flestir eru sammála um mikilvægi fræðslu og forvarna þegar kemur að notkun áfengis. Hér er einmitt lagt til að við stóraukum framlög til slíkra forvarna. Það er enginn að draga úr þeim mikilsverða árangri sem við höfum náð í því skyni, t.d. með því að draga verulega úr unglingadrykkju á undanförnum árum. Það er líka vert að hafa í huga að þeim árangri höfum við einmitt fyrst og fremst náð á grundvelli fræðslu og forvarna, því að samhliða þeim árangri sem við höfum náð á undanförnum áratugum í að draga úr unglingadrykkju hefur aðgengi að áfengi stóraukist. Í raun og veru er því fyrst og fremst verið að spyrja með þessu frumvarpi: Er kjarni áfengisvarnarstefnu okkar sá að ríkið eitt fari með smásölu áfengis? Því að við heimilum einkaaðilum að selja áfengi á margs konar hátt, bara ekki í verslunum.

Eins og ég nefndi áður voru útgefin vínveitingaleyfi á Íslandi liðlega 1.200, meira og minna öll til einkaaðila. Þar treystum við einkaaðilum fyllilega til að fara með þetta ábyrgðarhlutverk en einhverra hluta vegna ekki á smásölustiginu. Ég er ekki sammála þeirri nálgun að árangri í forvörnum og fræðslu um áfengisneyslu, sérstaklega þó hvað varðar ungt fólk, verði einungis náð með ríkiseinokun á smásölustigi. Ég tel þvert á móti að það skipti engu máli í þeim samanburði og að fullkomlega eðlilegt sé að horfa til eðlilegs samkeppnisumhverfis á þessu sviði sem og öðrum með því að stíga loks þetta skref og afnema einokun ríkisins á smásöluhlutanum.

Enn og aftur snýst málið á endanum um afstöðu okkar til viðskiptafrelsis, afstöðu okkar til þess hvort við viljum ríkiseinokun á öllum viðkvæmum mörkuðum, sem sala með áfengi getur vissulega talist, eða hvort við eigum að treysta öðrum ráðum, þ.e. almennri reglusetningu varðandi slíka sölu, en ekki síður þróttmiklu forvarna- og fræðslustarfi til að sporna við neikvæðum áhrifum af óhóflegri áfengisneyslu.

Ég legg fullt traust á virkni þeirrar stefnu sem hér hefur í raun verið fylgt, sem er annars vegar skattlagning á áfengi til að draga úr neyslu, og þróttmikið forvarna- og fræðslustarf, sér í lagi sem beint er að ungu fólki til að sporna gegn óhóflegri neyslu almennt, en ekki síður óhóflegri neyslu ungmenna.

Ég ætla ekki að hafa orð mín fleiri um þetta mál en ég vona svo sannarlega að þingið hafi hugrekki til að klára þetta mál einu sinni til enda og taka afstöðu til þess í þingsal þó að við séum fylgjandi afnámi þessarar ríkiseinokunar.